<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-08T13:51:36" skst="JGH" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-08 13:52:40 -->

  <ns:umsýsla fundur="15" lgþ="158" tími="2026-10-08T13:51:36">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="þs" nr="82">
      <ns:málsheiti>samkomulag þingflokksformanna við þinglok</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég held að ég verði að koma upp og leiðrétta
    hér hv. félaga mína í stjórnarandstöðunni. Ég held að það sem við erum
    ekki að átta okkur á, eins og hefur komið fram í ræðum hv. þingmanna, bæði
    Guðmundar Ara Sigurjónssonar og Sigurjóns Þórðarsonar, er að þetta snýst
    hvorki um staðreyndir né sannleika. Þetta snýst um upplifun. Við erum
    komin í heim upplifunarstjórnmála. Ég held að það væri ágætt upp á
    framhaldið að spyrja: Hvernig í ósköpunum, virðulegur forseti, eigum við í
    stjórnarandstöðu í framhaldinu að semja við upplifunarríkisstjórn þar sem
    upplifunarstjórnmál eru það sem ræður för? Það væri ágætt að fá fram,
    virðulegur forseti, með hvaða hætti við getum í rauninni gert samninga við
    slíka hæstv. ríkisstjórn þar sem málið snýst ekki um staðreyndir né
    sannleika eða framkvæmd heldur upplifun hvers og eins. Það væri
    athyglisvert, virðulegur forseti, að fá leiðbeiningar um það fyrir okkur í
    stjórnarandstöðunni.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>