<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-08T13:52:48" skst="GAS" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-08 13:53:54 -->

  <ns:umsýsla fundur="15" lgþ="158" tími="2026-10-08T13:52:48">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="þs" nr="82">
      <ns:málsheiti>samkomulag þingflokksformanna við þinglok</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég kem hér aftur upp til að ítreka það að
    traust skiptir miklu máli hér á Alþingi og sérstaklega milli
    þingflokksformanna. Ég vil taka undir með þeim þingmönnum sem hafa lýst
    því að það er miður að samkomulög þurfi að vera undirrituð og að ekki sé
    hægt að treysta munnlegum samkomulögum. Því miður hefur reynt á það á
    kjörtímabilinu og það er ekki á ábyrgð stjórnarmeirihlutans að hafa svikið
    munnleg samkomulög. Þetta hefur áður komið fram hér í ræðustól Alþingis.
    En ef við ætlum að tala um staðreyndir, hæstv. forseti, eins og hv. þm.
    Jens Garðar Helgason kom inn á, þá eru staðreyndirnar einfaldlega tvær.
    Það var samið um að fresta því að breyta lögum síðastliðið vor og sú
    breyting var hluti af því frumvarpi sem átti annars fram að ganga en var
    vísað inn í heildarendurskoðun laga. Frumvarpið á að leggja fram og er það
    á þingmálaskrá núna í haust. Jafnframt var samið um að haldinn yrði
    samráðsfundur meiri og minni hluta áður en áður en það frumvarp yrði lagt
    fram. Frumvarpið er ekki komið fram. Búið er að boða samráðsfund. Þetta
    eru staðreyndir málsins.<!--Breytti nokkuð innan *** ***. Þarna eru snúnar setningar en þetta er eins og ég skil það.--></ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>