<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-08T13:54:06" skst="SÁA" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-08 13:55:05 -->

  <ns:umsýsla fundur="15" lgþ="158" tími="2026-10-08T13:54:06">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="þs" nr="82">
      <ns:málsheiti>samkomulag þingflokksformanna við þinglok</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Vegna ummæla síðasta ræðumanns, hv. þm.
    Guðmundar Ara Sigurjónssonar, þingflokksformanns Samfylkingarinnar, þá
    hlýt ég að kalla eftir því að hann komi hér aftur upp og útskýri hvað hann
    átti við með vísun í að munnleg samkomulög þingflokksformanna hefðu verið
    brotin hér. Mér finnst það ómaklegt að koma hér upp í ræðustól Alþingis og
    vísa með óljósum hætti til þess að menn hafi gengið á bak orða sinna í
    munnlegum samkomulögum í annars ágætu samstarfi sem þingflokksformenn hafa
    átt á þessu kjörtímabili saman. Ég hlýt að kalla eftir því að hann geri
    grein fyrir þessum ummælum því að ég kannast ekki við slíkt af hálfu
    stjórnarandstöðunnar.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>