<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-08T13:55:55" skst="SVS" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-08 13:58:00 -->

  <ns:umsýsla fundur="15" lgþ="158" tími="2026-10-08T13:55:55">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="74">
      <ns:málsheiti>fyrirhuguð sameining lögregluembætta</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Mig langar að beina orðum mínum til hæstv.
    dómsmálaráðherra eftir kjördæmaviku þar sem við fórum um
    Norðvesturkjördæmi og töluðum við sveitarstjórnarfulltrúann okkar þar
    ásamt íbúum. Það var alveg ljóst að þar voru miklar áhyggjur af
    fyrirhugaðri sameiningu lögregluembættanna. Af hverju er hræðslan? Jú, hún
    er til komin af mörgum þáttum. Menn hafa áhyggjur af minni löggæslu, lægra
    öryggisstigi og lakari þjónustu. En sporin hræða líka.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Við höfum séð sameiningu heilbrigðisstofnana þar sem hefur fækkað
    á landsbyggðinni. Við vitum ekki hvernig mál heilbrigðiseftirlitanna
    endar. Við höfum séð fækkun í vinnueftirliti. Það átti að gera atlögu og
    var gerð atlaga að framhaldsskólunum sem var sem betur fer fallið frá. Við
    vitum ekki alveg hvernig sameining sýslumanna mun fara en inni í efnahags-
    og viðskiptanefnd er nú tillaga eða fyrir liggur frumvarp um að færa
    innheimtu frá sýslumönnum til Skattsins. Árið 2015 voru lögregluumdæmin
    sameinuð í þeirri mynd sem þau eru í dag. Ef við skoðum dæmin t.d. frá
    Húsavík, Dalvík, Ólafsfirði, Siglufirði, Snæfellsnesi og víðar um landið
    sjáum við að það hefur orðið fækkun og samþjöppun á lögreglumönnum.
    Lögreglumennirnir sem voru á þessum smærri stöðum hafa færst inn á stærri
    staðina. Því er spurning mín til hæstv. ráðherra þessi: Hvernig ætlar
    ráðherra að tryggja það í lagasetningunni að sá fjöldi lögreglumanna sem
    nú er staðsettur í hinum dreifðu byggðum landsins haldist að lágmarki
    óbreyttur þar sem þeir eru staðsettir í dag?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>