<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="dómsmrh." frhr="0" id="r2026-10-08T13:58:12" skst="ÞorbG" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-08 14:00:20 -->

  <ns:umsýsla fundur="15" lgþ="158" tími="2026-10-08T13:58:12">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="74">
      <ns:málsheiti>fyrirhuguð sameining lögregluembætta</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni kærlega fyrir
    fyrirspurnina og ég veit að málefni lögreglunnar standa honum nærri.
    Markmiðið með þessari sameiningu í mínum huga er einfaldlega þetta: að með
    stærri embættum verði lögreglan hringinn í kringum landið betur í stakk
    búin til að fást við stöðugt flóknari verkefni. Að stefna og skipulag
    lögreglu geti gengið hönd í hönd við það að styðja við lögreglu í sífellt
    flóknari verkefnum. Við vitum að við búum í landi, sérstaklega í ákveðnum
    landshlutum, þar sem almannavarnaástand er viðvarandi. Við vitum að
    ferðaþjónusta hefur sprungið út á liðnum árum með auknum ferðalögum
    hringinn í kringum landið. Við vitum að íbúum landsins hefur fjölgað um
    50.000 frá árinu 2017 og við vitum, því miður, að Ísland er ekki
    undanskilið þegar kemur að ógnum skipulagðrar glæpastarfsemi. Þá eru
    ótaldar hinar fjölþjóðlegu ógnir sem við stöndum frammi fyrir líka. Stærra
    embætti mun einfaldlega betur geta náð utan um þessi verkefni. Það kemur
    alveg skýrt fram í þeim frumvarpsdrögum, sem eru bara á leiðinni í
    samráðsgátt í dag eða á morgun, að það stendur ekki til að fækka
    starfsstöðvum. Það stendur ekki til að fækka lögreglumönnum enda gildir
    auðvitað um lögreglumenn eins og um heilbrigðisþjónustu að sú þjónusta
    þarf alltaf að vera í návígi við borgarana í landinu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég ferðaðist í sumar hringinn í kringum landið, átti fundi og
    samtöl við öll lögregluembættin. Þar voru uppi ólík sjónarmið en ég vil þó
    segja þetta: Gegnumgangandi voru viðbrögðin jákvæð. Það voru einstaka
    undantekningar á því og ég er sammála því sem þingmaðurinn segir að sporin
    hræða að einhverju marki. En metnaður minn og markmið mitt er að styrkja
    lögregluna og styðja hana til þess með þessum
    skipulagsbreytingum.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>