<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-08T14:00:26" skst="SVS" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-08 14:01:42 -->

  <ns:umsýsla fundur="15" lgþ="158" tími="2026-10-08T14:00:26">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="74">
      <ns:málsheiti>fyrirhuguð sameining lögregluembætta</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Það kom svo sem ekki á óvart að hæstv.
    dómsmálaráðherra svaraði í engu þeirri fyrirspurn sem beint var til
    hennar. En gott og vel, ég átti svo sem ekkert endilega von á því. Já, það
    er hægt að standa vörð um starfsstöðvarnar og já, það er gott og blessað
    ef á ekki að fækka lögreglumönnum. Það eru allir sammála um það og það
    markmið. Áhyggjurnar snúast ekki að því, virðulegur forseti. Áhyggjurnar
    snúast að því að þeim lögreglumönnum sem nú eru starfandi, svo ég taki
    bara mitt gamla umdæmi, á Blönduósi, Hvammstanga og Sauðárkróki, muni
    fækka; að rannsóknardeildirnar verði meira og minna færðar inn á stærri
    staðina og þjónusta verði þar af leiðandi skert við íbúa á svæðinu og
    öryggisstigið muni lækka. Því er spurningin þessi: Telur ráðherrann að hún
    geti sett <ns:bjalla/> lágmarksfjölda lögreglumanna á ákveðnum stað inn í
    lögin? Annars verður þetta þróunin.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>