<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="dómsmrh." frhr="0" id="r2026-10-08T14:01:48" skst="ÞorbG" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-08 14:03:02 -->

  <ns:umsýsla fundur="15" lgþ="158" tími="2026-10-08T14:01:48">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="74">
      <ns:málsheiti>fyrirhuguð sameining lögregluembætta</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Markmiðið er að auka sérhæfinguna í byggðum landsins.
    Markmiðið er að staðsetja þar landsbundin verkefni. Markmiðin eru að færa
    fleiri stoðverkefni út í byggðirnar.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þingmaðurinn spyr: Hvað er hægt að gera í lagasetningu? Ég held að
    sá ráðherra sem hér stendur hafi sýnt það ágætlega. Hvað var gert með
    frumvarpið um sýslumenn? Við merktum það sérstaklega inn að 65% starfa
    ættu að vera í byggðunum <ns:frammíkall/> þannig að það er allt hægt á
    landsbyggðinni. <ns:frammíkall skst="SVS">Sem getur verið hvar sem
    er.</ns:frammíkall> Landsbyggðin er jafnan á landsbyggðinni. Við merktum
    það inn að 65% starfa ættu að vera þar en nú er búið að eiga sér stað
    samtal við lögregluna í landinu öllu. Það var settur upp hópur sem smíðaði
    þessar tillögur sem í sátu formaður Landssambands lögreglumanna, formaður
    lögreglustjórafélagsins, ríkislögreglustjóri og fulltrúar ráðuneytisins.
    Nú er þetta mál á leiðinni inn í samráðsgátt. Svo kemur það fyrir þingið.
    Ég hlakka til umræðunnar og ég hef sömu markmið og sama metnað fyrir hönd
    lögreglunnar í landinu öllu og hv. þingmaður og það veit hann ósköp
    vel.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>