<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-08T14:03:15" skst="JGH" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-08 14:05:18 -->

  <ns:umsýsla fundur="15" lgþ="158" tími="2026-10-08T14:03:15">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="75">
      <ns:málsheiti>frumvarp til laga um breytingu á húsaleigulögum</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Herra forseti. Viðreisn, a.m.k. í orði og fyrir kosningar,
    skilgreinir sig sem frjálslyndan hægri flokk sem trúir á lægri skatta,
    virðingu fyrir eignarréttinum og trú á markaðinn. Þegar áherslumál
    ríkisstjórnarinnar frá Flokki fólksins koma hér inn í þingsal, hvort sem
    það er vísitölutenging bóta, leigubremsa eða önnur inngrip í eignarrétt
    fólks, þá fer Viðreisn í felur og þingmenn læðast hér um gangana og vilja
    helst ekkert af málinu vita.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Nú var 1. umræða um leigubremsu að klárast í gær og það kom engum
    á óvart að enginn úr flokki hæstv. utanríkisráðherra tók þátt í þeim
    umræðum. Um þetta frumvarp hefur m.a. framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins
    og fyrrum varaformaður og ráðherra Viðreisnar, Þorsteinn Víglundsson, sagt
    að leigubremsa muni draga úr framboði á húsnæði, verða til þess að fækka
    ótímabundnum leigusamningum og fjölga verðtryggðum leigusamningum.
    Seðlabankastjóri gekk jafnvel skrefinu lengra og sagði, með leyfi forseta,
    að þetta væru algerlega röng viðbrögð sem kæmu leigjendum verst. Hann
    kallar frumvarpið heimskulegt og að allir hagfræðingar eigi að vita að
    þetta virkar ekki.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Stefna Viðreisnar frá landsþingi 2025 segir, með leyfi forseta, að
    „markaðslausnir skulu ávallt nýttar þar sem þær nýtast best“. Ávallt.
    Þetta er ekki markaðslausn, þetta er handstýring, virðulegur forseti. Mig
    langar því að spyrja hæstv. utanríkisráðherra, sem er einnig formaður
    Viðreisnar: Styður hæstv. ráðherra þetta mál heils hugar þrátt fyrir að
    það gangi gegn eignarrétti og samningsfrelsi fólks og gangi í berhögg við
    stefnu Viðreisnar? Styður hún að halda áfram með þetta mál eftir ummæli
    fyrrverandi varaformanns Viðreisnar og seðlabankastjóra?</ns:mgr>

    <!--https://vidreisn.is/wp-content/uploads/2025/09/Efnahagsmal-alyktun-landsthings-2025.pdf-->
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>