<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="utanrrh." frhr="0" id="r2026-10-08T14:05:24" skst="ÞKG" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-08 14:07:38 -->

  <ns:umsýsla fundur="15" lgþ="158" tími="2026-10-08T14:05:24">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="75">
      <ns:málsheiti>frumvarp til laga um breytingu á húsaleigulögum</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Það var ekkert sem kom á óvart frá varaformanni
    Sjálfstæðisflokksins, ekki neitt. Það að taka m.a. úr samhengi orð
    seðlabankastjóra, nota þau bara til heimabrúks — það var alveg skýrt sem
    hann sagði í gær, að hann hefði ekki lesið frumvarpið. Svo vil ég líka
    segja að það kemur heldur ekki á óvart, bara alls ekki, að hér er
    varaformaður í flokki sem við vorum með í sjö ár og það var stöðnun í
    meira og minna þau öll. Á ég að fara í orkumálin, á ég að fara í það sem
    kom fram á sínum tíma í yfirlýsingu stjórnvalda við gerð
    lífskjarasamninganna 2019? Hvað var sagt þá?</ns:mgr>

    <!--af vef stjórnarráðs hvort tveggja-->

    <ns:mgr>„Ákvæði húsaleigulaga verði endurskoðuð til að bæta réttarstöðu
    leigjenda, meðal annars hvað varðar vernd leigjenda þegar kemur að hækkun
    leigufjárhæðar og bættri réttarstöðu leigjenda við lok
    leigusamnings.“</ns:mgr>

    <ns:mgr>Síðan er texti um húsaleigulög úr yfirlýsingu stjórnvalda árið
    2024. Auðvitað vill Sjálfstæðisflokkurinn ekki kannast við þetta:</ns:mgr>

    <ns:mgr>„Húsnæðisöryggi leigjenda verður aukið og skýrari rammi settur um
    ákvörðun og fyrirsjáanleika leigufjárhæðar með breytingum á húsaleigulögum
    auk bættrar ráðgjafar og upplýsinga til leigjenda.“</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þetta kemur ekkert á óvart. Þetta er hluti af því sem við í
    þessari ríkisstjórn erum að gera. Við erum að fylgja eftir því sem þýðir
    og fellur undir það að vera ábyrg stjórnvöld, taka ákvarðanir sem þarf að
    taka til þess að styrkja m.a. stöðuna á vinnumarkaði, til að styrkja
    stöðuna í kjarasamningum. Auðvitað vonast ég til þess að allir samningar á
    vinnumarkaði náist en við erum að sjá líka að samningar meðal almennra
    verkalýðsfélaga og Samtaka atvinnulífsins hafa komist í gegn, m.a. út af
    aðgerðum ríkisstjórnarinnar. Það er ekkert sem kemur hér á óvart, að
    Sjálfstæðisflokkurinn vilji ekki kannast við yfirlýsingar fyrri stjórna
    sem við erum að hluta til að fylgja eftir. Það er heldur ekkert sem kemur
    á óvart að aldraðir, öryrkjar, fátækt fólk, já, sem Flokkur fólksins er
    sífellt að halda við borðið — það hvarflar að Sjálfstæðisflokknum ekki
    einu sinni ein hugsun, heilbrigð hugsun til þessa hóps í
    samfélaginu.</ns:mgr>

    <!--segir: Sjálfstæðisflokkurinn er ekki einu sinni að hvarfla einni hugsun, heilbrigðri hugsun...-->
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>