<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-08T14:07:49" skst="JGH" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-08 14:09:25 -->

  <ns:umsýsla fundur="15" lgþ="158" tími="2026-10-08T14:07:49">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="75">
      <ns:málsheiti>frumvarp til laga um breytingu á húsaleigulögum</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Hæstv. ráðherra kemur hér upp og svarar engu.
    Rantar hér um Sjálfstæðisflokkinn og verk Sjálfstæðisflokksins og það er
    eiginlega alveg sama um hvað hæstv. ráðherra er spurður að þá er bara
    farið í það að ráðast á Sjálfstæðisflokkinn. <ns:frammíkall skst="utanrrh."/> En það er samt svolítið merkilegt — hæstv. ráðherra, nú
    er ég með orðið — að það skín í gegn að hæstv. ráðherra og formaður
    Viðreisnar er andvígur þessu máli. Það skín í gegn og það sjá allir hvað
    þetta mál er erfitt fyrir Viðreisn. Við sáum það sem vorum í umræðunni
    hvað þetta mál er erfitt fyrir þingmenn Viðreisnar og ráðherra Viðreisnar
    því þegar rökin þrjóta tekur skætingurinn við. Það er bara þannig,
    virðulegur forseti. Og þegar það er sagt að hér sé verið að bjarga
    vinnumarkaðnum — virðulegur forseti, þetta er sex mánaða gamalt mál. Það
    er langt síðan hæstv. félagsmálaráðherra tilkynnti að hann ætlaði að boða
    þetta mál en svo er búið að setja þetta mál núna inn í framlengingu
    kjarasamninga. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra og kannski ef hún gæti
    nú einu sinni svarað án þess að vera með skæting: Styður hæstv. ráðherra
    og finnst henni það virkilega ábyrgt miðað við þau varnaðarorð
    <ns:bjalla/> sem eru búin að koma um þetta frumvarp, bæði frá
    seðlabankastjóra, og það var ekkert hægt að misskilja orð
    seðlabankastjóra, <ns:bjalla/> og fyrrverandi varaformanni Viðreisnar,
    styður hún að þetta mál haldi <ns:bjalla/> áfram og finnst henni ekki
    óábyrgt að það sé búið að setja þetta inn í framlengingu kjarasamninga
    <ns:bjalla/> miðað við þau varnaðarorð sem búið er að hafa uppi?</ns:mgr>

    <ns:mgr><ns:forseti skst="BHar"> Forseti minnir á að virða tímamörkin.
    Ræðutíminn er eingöngu ein mínúta í síðari umferð.</ns:forseti></ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>