<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="utanrrh." frhr="0" id="r2026-10-08T14:09:37" skst="ÞKG" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-08 14:10:30 -->

  <ns:umsýsla fundur="15" lgþ="158" tími="2026-10-08T14:09:37">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="75">
      <ns:málsheiti>frumvarp til laga um breytingu á húsaleigulögum</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Hér var aftur varaformaður
    Sjálfstæðisflokksins, sem var hérna held ég bara fyrir tveimur dögum í
    þessari pontu, að býsnast yfir því að það væri búið að ná samningum á
    vinnumarkaði, fannst það bara alveg ómögulegt að ríkisstjórnin hefði verið
    að koma með aðgerðir sem hefðu einmitt liðkað fyrir á vinnumarkaði.
    Auðvitað verðum við að ná fram verðstöðugleika til lengri tíma og það
    þýðir að við þurfum að grípa til aðgerða í einum eða öðrum málum. Svo
    segir varaformaðurinn hér að þetta mál hafi komið fyrir sex mánuðum. Já,
    það er nákvæmlega rétt. Af hverju? Af því að þessi ríkisstjórn fór strax
    að huga að því hvernig hægt væri að byggja undir það að við næðum
    eðlilegum niðurstöðum á vinnumarkaði. Auðvitað fór þessi ríkisstjórn beint
    í það, var ekki að draga lappirnar fram á síðustu metra, eins og var
    gjarnan hjá fyrri ríkisstjórn.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>