<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-08T14:10:49" skst="SÖH" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-08 14:12:57 -->

  <ns:umsýsla fundur="15" lgþ="158" tími="2026-10-08T14:10:49">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="76">
      <ns:málsheiti>gjaldtaka af erlendum ferðamönnum</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst
    síðastliðinn hóf ríkisstjórnin skyndilega að tala um mikilvægi þess að
    standa vörð um EES-samninginn og það er óhætt að taka undir mikilvægi
    þess. Það kom því á óvart þegar hæstv. atvinnuvegaráðherra lagði frumvarp
    um náttúru- og innviðagjald í samráðsgátt þar sem kveðið er á um
    gjaldskyldu ferðamanna sem heimsækja Gullfoss, Geysi og Þingvelli, þrjá
    ferðamannastaði í Bláskógabyggð. Í frumvarpinu felst að þeir sem hafa
    skattalega heimilisfesti annars staðar en á Íslandi þurfi að greiða 4.500
    kr. á meðan þeir sem hér búa eru undanþegnir gjaldinu. Slík mismunun á
    gjaldskyldu á grundvelli skattalegrar heimilisfesti telst óbein mismunun á
    grundvelli ríkisfangs og brýtur gegn 4. gr. EES-samningsins, líkt og fram
    kom í dómi Evrópudómstólsins í máli framkvæmdastjórnarinnar gegn Ítalíu
    frá árinu 2001. Þar hafnaði dómstóllinn þeirri málsvörn ítalskra
    stjórnvalda að mismunun á grundvelli skattalegrar heimilisfesti væri
    réttlætanleg á þeim grundvelli að þeir sem byggju á Ítalíu hefðu þegar
    tekið þátt í fjármögnun ferðamannastaða með almennum skattgreiðslum. Því
    var sem sagt hafnað af Evrópudómstólnum. Þetta er sama málsvörn og lagt er
    upp með í greinargerð með drögum að frumvarpi hæstv. ráðherra.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég vil því spyrja hæstv. atvinnuvegaráðherra í fyrsta lagi hvort
    hún þekki til einhverra dómafordæma Evrópudómstólsins eða EFTA-dómstólsins
    þar sem mismunun við gjaldskyldu byggð á skattalegri heimilisfesti var
    ekki talin brjóta gegn EES-samningnum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Í öðru lagi vil ég spyrja ráðherra hvort hún telji að unnt væri að
    ná markmiðum frumvarpsins, sem eru álagsstýring á ferðamannastaði og að
    tryggja kostnaðarþátttöku þeirra sem nýta náttúruauðlindir, án þess að
    mismuna einstaklingum á grundvelli ríkisfangs.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>