<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="atvvrh." frhr="0" id="r2026-10-08T14:13:06" skst="HKF" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-08 14:15:16 -->

  <ns:umsýsla fundur="15" lgþ="158" tími="2026-10-08T14:13:06">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="76">
      <ns:málsheiti>gjaldtaka af erlendum ferðamönnum</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina og þetta
    er auðvitað gríðarlega áhugavert mál. Staðreyndin er sú, svo að ég hafi
    aðeins formála að því, að stjórnvöld, hverra flokka sem þau hafa verið
    skipuð, um árabil hafa verið að leita leiða til að tryggja að hér ráðum
    við við það að byggja upp innviði, vernda náttúruna okkar, til þess að
    geta byggt hér upp sjálfbæra, öfluga ferðaþjónustu áfram. Álögur á
    skattgreiðendur hér við uppbyggingu þeirra innviða sem þörf hefur verið á
    að efla vegna ferðaþjónustunnar hafa verið gríðarlegar og fordæmalitlar
    þegar litið er til hlutfalls þeirra sem hér lifa, búa, starfa og greiða
    skatt og þeirra sem hingað koma. Þess vegna var farin sú leið, í ljósi
    þess að íslenskir skattgreiðendur eða þeir sem greiða skatt hér á landi
    borga þegar sinn hlut í uppbyggingu innviða, að skoða hvort ekki væri
    fordæmi fyrir því að fara þessa leið við gjaldtöku af náttúruinnviðum.
    <!--Heyri ekki hvað hún segir, ath. 14:14:05 ☺--> og það er innan landa
    Evrópusambandsins. Ég nefni Króatíu, Ítalíu og Spán. Við erum að fara
    þessa leið. Við höfum fengið lögfræðiálit þar sem þessi mál hafa verið
    skoðuð. Í ljósi þess þá er það, þegar litið er til markmiða þessarar
    gjaldtöku og meðalhófs EES-réttar, að ótakmörkuð skattskylda sé hlutlægt
    og málefnalegt viðmið og það réttlæti þessa aðgreiningu sem við erum hér
    að leggja í. Við höfum lagt við undirbúning frumvarpsins sérstakt mat á
    samræmi við EES-samninginn, fengið lögfræðiálit þar að lútandi, og það er
    mat okkar að þetta fyrirkomulag, ekki síst þegar við leitum til þeirra
    dæma sem fyrir eru, gildi. Undir þessu liggur alltaf hið pólitíska mat.
    Það er eðlilegt að okkar erlendu gestir sem hingað koma eigi rétt á að
    gjald sem þeir greiða sé notað í uppbyggingu innviða. Við viljum búa svo
    um hnútana að þeir borgi það og að það séu ekki eingöngu skattgreiðendur
    hér á landi sem beri þann kostnað.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>