<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-08T14:15:22" skst="SÖH" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-08 14:16:52 -->

  <ns:umsýsla fundur="15" lgþ="158" tími="2026-10-08T14:15:22">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="76">
      <ns:málsheiti>gjaldtaka af erlendum ferðamönnum</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið. Staðreyndin er hins
    vegar sú að þessari málsvörn sem hæstv. ráðherra fór yfir hefur verið
    hafnað af Evrópudómstólnum í því máli sem ég vísaði til í fyrri fyrirspurn
    minni. Hæstv. ráðherra nefnir hér ferðamannastaði eins og Dubrovnik,
    Madeira og annað þar sem slík gjaldtaka þekkist. Hún er allt annars eðlis,
    í Dubrovnik greiða sumir Króatar fyrir aðganginn en aðrir ekki. Það er
    bundið við íbúana akkúrat á því tiltekna svæði, allt annars eðlis en hér
    um ræðir. Allt verður þetta svolítið kauðslegt og minnir um margt á
    landamæraeftirlitið á Keflavíkurflugvelli í gamla daga. Það dugði bara að
    segja: Heyrðu, ég er Íslendingur.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Í vikunni mælti utanríkisráðherra fyrir frumvarpi sínu um bókun 35
    og lagði út frá svokölluðu fæðingarorlofsmáli þar sem ung móðir fór á mis
    við réttindi sökum mistaka við innleiðingu EES-reglna. Náttúru- og
    innviðagjald hæstv. ráðherra er hins vegar allt annars eðlis.<ns:bjalla/>
    Það virðist vera óumdeilt í frumvarpinu að það feli í sér þessa óbeinu
    mismunun á grundvelli ríkisfangs og ætlaðar réttlætingarástæður taka
    eingöngu til almennrar þarfar á gjaldtöku en ekki sjálfrar
    mismununarinnar. </ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég spyr því hæstv. ráðherra: Hvernig fer þetta tvennt saman og er
    málið ekki ögrun við fjórfrelsi EES-samningsins?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>