<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="atvvrh." frhr="0" id="r2026-10-08T14:16:57" skst="HKF" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-08 14:18:24 -->

  <ns:umsýsla fundur="15" lgþ="158" tími="2026-10-08T14:16:57">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="76">
      <ns:málsheiti>gjaldtaka af erlendum ferðamönnum</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Aftur þakka ég fyrirspurnina. Þetta er, ég endurtek, mjög
    áhugavert viðfangsefni sem við stöndum frammi fyrir. Akkúrat þau dæmi sem
    hv. þingmaður telur upp um ólíkar aðstæður í þeim löndum sem ég tilgreindi
    eru akkúrat einn af grundvöllum þess að við erum að fara þessa leið. Við
    erum enn eitt ólíkt dæmið. Flestir þessir staðir, sem á einhvern hátt
    mismuna skattgreiðendum í heimalandi og þeim erlendu gestum sem koma,
    byggja á fornminjum. Við erum með náttúruminjar eða náttúruna okkar sem
    okkur ber að vernda. Það er einfaldlega þannig að þessar aðstæður sem við
    erum með hér eru að töluverðu leyti frábrugðnar því sem liggur til
    grundvallar þessum eldri dómum sem hv. þingmaður nefnir. Við verðum
    einfaldlega að meta fordæmisgildi þeirra dóma og út frá þeim aðstæðum sem
    við erum með. Við höfum leitað til lögfræðinga, sérfræðinga í Evrópurétti.
    Ég trúi því að hv. þingmaður trúi því að mér sé sannarlega mikið í mun að
    brjóta ekki í bága við þennan mikilvæga samning okkar. <ns:bjalla/> Ég
    tel, að höfðu samráði við lögfræðinga og eftir að hafa skoðað þessi
    fordæmi, að við náum þessum gríðarlega mikilvægu, að mínu mati,
    <ns:bjalla/> markmiðum okkar, að láta ekki skattgreiðendur eina hér á
    landi borga brúsann við uppbyggingu innviða sem gagnast ferðaþjónustunni.
    Það er markmiðið.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>