<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-08T14:18:36" skst="BergÓ" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-08 14:20:55 -->

  <ns:umsýsla fundur="15" lgþ="158" tími="2026-10-08T14:18:36">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="77">
      <ns:málsheiti>búvörusamningar og rekstrarskilyrði landbúnaðar</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég vil eiga orðastað við hæstv. atvinnuvegaráðherra.
    Þannig háttar til að fjármálaráðherra birti í samráðsgátt áform um
    breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld hinn 4. september síðastliðinn.
    Það vakti eðlilega hörð viðbrögð meðal bænda þar sem málið hafði áður
    verið lagt fram og dregið til baka af núverandi stjórnvöldum sem gáfu út
    að málið skyldi rætt við hagaðila, bændur, í viðræðum um starfsumhverfi
    þeirra, sem er búvörusamningurinn. Þrátt fyrir það voru 6. október, í
    fyrradag, birt drög að frumvarpi með þessum breytingum. Til að setja það í
    samhengi gaf atvinnuvegaráðherra út yfirlýsingu þann 21. febrúar 2025 um
    að niðurstaða af samtali hennar við fjármálaráðherra væri að láta af
    áformum og eiga samtal og samráð við bændur áður en haldið væri áfram.
    Fjármálaráðherra hefur þar að auki í samskiptum sínum við ESA,
    Eftirlitsstofnun EFTA, tjáð stofnuninni að ekki verði lagt fram frumvarp
    um breytta tollflokkun án undangengins samtals og samráðs við hagaðila,
    þ.e. bændur. Komið hefur fram hjá Bændasamtökum Íslands að nú standi yfir
    viðræður við stjórnvöld um búvörusamninga og í umræðuáætlun þeirra sé á
    áætlun m.a. að fjalla um markaðsvernd í landbúnaði, sem er
    tollverndin.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hæstv. ráðherra, hvernig stendur á því að fjármálaráðherra leggur
    nú einhliða fram breytingar á tollflokkun landbúnaðarafurða, þar með
    breytingu á starfsumhverfi bænda, á meðan bændur telja sig vera í virku
    samtali um starfsumhverfi sitt til framtíðar sem hófst, ef ég skil það
    rétt, í gær með formlegum hætti? Hvað varð um samráðið og samtalið sem
    bæði fjármálaráðherra og atvinnuvegaráðherra, ráðherra landbúnaðar, hafa
    lofað bændum? Að mínu viti virðast stjórnvöld hér vera að ganga gegn þeim
    forsendum sem lagt var upp með við framlagningu búvörusamninga, sem eru í
    grunninn eins konar kjarasamningar bænda. Er stjórnvöldum á þessum tíma
    stætt á að fella einhliða forsendur slíkra samninga og það þvert á
    búvörusamninga? <ns:frammíkall/> Þetta er samtal sem er í gangi.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Því vil ég spyrja virðulegan hæstv. ráðherra: Hvernig hefur
    samskiptum þeirra tveggja ráðuneyta sem hér um ræðir verið háttað við
    undirbúning málsins? <ns:bjalla/> Var atvinnuvegaráðherra meðvituð um
    þessi áform fjármálaráðherra? Og hvernig samræmast þessi vinnubrögð þeim
    fyrirheitum sem bændum hafa verið gefin?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>