<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="atvvrh." frhr="0" id="r2026-10-08T14:21:05" skst="HKF" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-08 14:23:10 -->

  <ns:umsýsla fundur="15" lgþ="158" tími="2026-10-08T14:21:05">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="77">
      <ns:málsheiti>búvörusamningar og rekstrarskilyrði landbúnaðar</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Þrátt fyrir
    að hún beinist að þingmáli annars ráðherra ætla ég bara að taka þátt
    <ns:frammíkall/> í þessu samtali. — Já, af því að hv. þingmaður gefur sér
    þau fyrirheit að þetta sé atriði í búvörusamningunum, sem það er ekki.
    Jurtaostamálið er ekki atriði þar og er ekki neitt tengt þeim, ekki loforð
    þar og ekki tilgreint í búvörusamningunum. En kannski fyrst að stöðunni
    þar, af því að mér fannst hv. þingmaður nefna þær samningaviðræður. Þar er
    þríhliða samningur í gangi: Það er atvinnuvegaráðuneytið, það er
    fjármálaráðuneytið, sem er samningsaðilinn við Bændasamtökin, og
    Bændasamtökin eða -forystan fyrir hönd bænda. Þar er fundaröð í gangi og
    ég held að ég fari rétt með það að í gær var fundur. Það eru vikulegir
    fundir núna þar sem málefnin eru rædd hvert í sínum kafla og það gengur
    bara vel, að mér best vitandi.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Varðandi þetta tiltekna mál er fjármálaráðherra að taka á mjög
    afmörkuðu álitaefni um tollflokkun á tiltekinni blöndu mjólkurosts og
    jurtafitu. Það er ekki verið að ræða almenna tollvernd landbúnaðarafurða.
    Hún stendur áfram. Um hana verður rætt í búvörusamningunum. Þarna er verið
    að taka á, fjármálaráðherra sem er í samskiptum við
    Alþjóðatollastofnunina, held ég að hún heiti, <!--segir: Alþjóðatollamálastofnunina.-->annars
    vegar og síðan ESA varðandi þetta mál, metur í þeim samtölum
    heildarhagsmuni okkar þegar kemur almennt að alþjóðaviðskiptum. Þetta er,
    eins og ég skil málið, niðurstaða hans; að leggja þetta mál fram í
    samráð.<!--segir "að leggja þetta mál fram í samráð" (ekki samráði). Meinar e.t.v. að setja þetta mál í samráð. Fer milliveginn.-->
    Það er þar, að ég held. En þetta er svona stóra málið. Þetta tiltekna,
    afmarkaða álitaefni, um tollflokkun, er ekki hluti af
    búvörusamningum.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>