<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-08T14:23:21" skst="BergÓ" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-08 14:24:45 -->

  <ns:umsýsla fundur="15" lgþ="158" tími="2026-10-08T14:23:21">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="77">
      <ns:málsheiti>búvörusamningar og rekstrarskilyrði landbúnaðar</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið þó að í huga mínum
    standi fyrst og fremst eftir: Ja hérna. Það er vont ef bændur landsins
    finna sig í þeirri stöðu að geta ekki treyst yfirlýsingu
    atvinnuvegaráðherra. Hæstv. ráðherra verður þá að útskýra hvað fólst í
    yfirlýsingunni frá 25. febrúar 2025 um að niðurstaða af samtali hennar við
    fjármálaráðherra væri að láta af áformum um þetta, eiga samtal og samráð
    við bændur áður en haldið væri áfram. Þetta samtal og samráð hefur ekki
    átt sér stað. Við erum á sama stað og í málinu sem var rætt hér í
    fundarstjórn við upphaf þingfundar þar sem ráðherra telur bara allt annað
    felast í því sem yfirlýsing þessi leiddi fram, rétt eins og
    innviðaráðherra gagnvart 5,3% pottinum. Þetta er auðvitað alveg ótrúleg
    staða sem er að teiknast upp ef hvorki stjórnarandstaða í því máli sem var
    rætt hér fyrr í dag né heldur bændur og Bændasamtökin geta treyst því sem
    frá ráðherra málaflokksins kemur. Ég vil bara biðja virðulegan hæstv.
    ráðherra að útskýra hvað það var að mati ráðherra sem fólst í yfirlýsingu
    hennar frá 21. febrúar árið 2025 <ns:bjalla/> um að niðurstaða af samtali
    hennar við fjármálaráðherra væri að láta af áformum, <ns:bjalla/> eiga
    samtal og samráð við bændur áður en haldið væri áfram.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>