<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="atvvrh." frhr="0" id="r2026-10-08T14:24:52" skst="HKF" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-08 14:26:28 -->

  <ns:umsýsla fundur="15" lgþ="158" tími="2026-10-08T14:24:52">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="77">
      <ns:málsheiti>búvörusamningar og rekstrarskilyrði landbúnaðar</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Mér þykir leitt hvað hv. þingmaður er svartsýnn á lífið.
    Staðreyndin er sú að búvörusamningar voru framlengdir óbreyttir út árið
    2027, þ.e. frumvarp þess efnis liggur nú við þingið og samkomulag við
    Bændasamtökin um það var undirritað í vor. Ég, samkvæmt því samkomulagi,
    lagði fram frumvarp sem nú er í þinglegri meðferð. <ns:frammíkall/> Það
    sem hefur gerst síðan er m.a. að Alþjóðatollastofnunin hefur gert
    athugasemdir um það að við séum ekki að fylgja þeim samningum sem við
    höfum undirritað um samræmda tollskrá og það sem skiptir þá máli — ef hv.
    þingmaður er óánægður með svör mín varðandi þessa tollskrá þá mælist ég í
    allri vinsemd til þess að hann spyrji þann ráðherra sem fer með þann
    málaflokk. Nú er það svo … <ns:frammíkall/> — Ég ætla að fá að klára
    hérna. Nú er það svo að við eigum samtal, bæði við Bændasamtökin og við
    ráðherrarnir eigum samtal okkar á milli og þegar fjármálaráðherra, sem er
    með þessi samskipti á sinni könnu, kemur og hefur áhyggjur af því að hér
    séu heildarhagsmunir okkar undir í alþjóðaviðskiptum, <ns:bjalla/> að við
    séum ekki að standa við þessa samræmdu tollskrá og ætlar að skoða það og
    setja í samráð að leiðrétta það, <ns:bjalla/> þá gerir hann það og hann
    hefur til þess stuðning að skoða það. Þetta er komið í samráð.
    <ns:bjalla/> Þetta er á dagskrá. Þetta felur í sér samtal. Þetta er í
    vinnslu og þetta er í samtali.</ns:mgr>

    <ns:mgr><ns:forseti skst="BHar">Forseti minnir aftur á
    tímamörkin.</ns:forseti></ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>