<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-08T14:26:49" skst="ÞórP" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-08 14:28:58 -->

  <ns:umsýsla fundur="15" lgþ="158" tími="2026-10-08T14:26:49">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="78">
      <ns:málsheiti>áhrif af hækkunum á sköttum og gjöldum</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Það er eðlilegt að sum gjöld ríkis og
    sveitarfélaga taki breytingum á milli ára. Ríkissjóður og hið opinbera
    þurfa reglulega að uppfæra tekjuforsendur gjalda og verðlag breytist milli
    ára. Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum undanfarna daga þurfa hækkanir
    að vera samræmdar og hóflegar. Þær mega ekki leggjast hver ofan á aðra án
    þess að einhver hafi heildarmyndina. Í fjárlagafrumvarpinu hækka
    krónutölugjöld og kílómetragjald. Raunhækkun skattleysismarka fellur
    niður. Barnabætur standa óbreyttar þriðja árið í röð. Hvert atriði virðist
    kannski lítið eitt og sér en samanlögð áhrif þeirra eru mikil. Boðaðar
    breytingar ríkisstjórnarinnar eru á margan hátt jákvæðar en það er ekkert
    fast í hendi. Við í Framsókn höfum metið áhrif frumvarpsins á einstakar
    fjölskyldur. Við getum ekki betur séð en að áhrifin séu veruleg. Fyrir
    hjón með tvö börn og hefðbundið húsnæðislán sýnist okkur að þau geti numið
    um 200.000–300.000 kr. á ári að meðtöldum áhrifum á húsnæðislán.
    Hlutfallslega leggst byrðin þungt og jafnvel þyngst á tekjulægri
    barnafjölskyldur. Þetta snertir málaflokk hæstv. félags- og
    húsnæðismálaráðherra. Ef hækkanir gjalda taka stóran hluta kjarabóta til
    baka er það áhyggjuefni. Því spyr ég hæstv. ráðherra: Hefur ráðherra eða
    ráðuneyti hans lagt heildstætt mat á það hver heildaráhrif hækkana gjalda
    og skatta í fjárlagafrumvarpinu eru á fjárhag einstakra fjölskyldna í
    landinu? Ef svo er, hver eru þá áhrifin að mati ráðherra?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>