<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="fél.- og húsnrh." frhr="0" id="r2026-10-08T14:29:11" skst="RÞI" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-08 14:31:23 -->

  <ns:umsýsla fundur="15" lgþ="158" tími="2026-10-08T14:29:11">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="78">
      <ns:málsheiti>áhrif af hækkunum á sköttum og gjöldum</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa fyrirspurn. Ég hef
    ekki farið yfir nýja samantekt eða reiknivél Framsóknarflokksins varðandi
    útgjaldaauka. Hins vegar hefur verið mjög rík áhersla í þeim málaflokkum
    sem við erum með í mínu ráðuneyti sem snúa að félagsmálum einna helst,
    barnafjölskyldum í kringum Fæðingarorlofssjóð og fleiri þætti. Við höfum
    verið að gera mjög margvíslegar breytingar, ef við tökum bara
    fæðingarorlofskerfið, margar mjög jákvæðar breytingar sem snúa að réttlæti
    og bættum kjörum foreldra þar. Það þýðir ekki að við séum hætt að vinna að
    bættum kjörum þar.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Spurningin er að vísu varðandi fjárlögin og gjaldahækkanir. Það
    hillir nú í samkomulag á vinnumarkaði þar sem við erum að endurskoða þessi
    gjöld samhliða friði á vinnumarkaði. Væntanlega þarf þá hv. þingmaður og
    hans flokkur að endursetja það inn í reiknivélina. Stóra málið hjá okkur í
    ráðuneytinu er núna að leita allra leiða til að ná niður stærsta kostnaði
    hverrar fjölskyldu, sem er húsnæði, bæði í formi réttarbóta á leigumarkaði
    og í formi sérstakra aðgerða til þess að auka stórlega framboð á hagkvæmu
    húsnæði sem verða væntanlega kynntar fljótlega. Við erum að fara í gegn
    með og erum að kynna stórfellda einföldun á byggingarreglugerð til að hægt
    sé að hraða uppbyggingu og fyrstu drög að breytingum á skipulagslögum eru
    komin í samráðsgátt. Byggingarreglugerð hefur þegar verið kynnt. Allt er
    þetta til þess að tala inn í lægri verðbólgu og lægri vexti sem ég held að
    við séum öll sammála um að sé mesta kjarabótin sem hægt er að lenda.
    Endurskoðun kjarasamninga er auðvitað stór þáttur í því og það verður
    gaman að kynna þær aðgerðir þegar þær verða gerðar opinberar.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>