<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-08T14:31:30" skst="ÞórP" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-08 14:33:01 -->

  <ns:umsýsla fundur="15" lgþ="158" tími="2026-10-08T14:31:30">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="78">
      <ns:málsheiti>áhrif af hækkunum á sköttum og gjöldum</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég verð svo sem að segja að mér kemur svar hæstv.
    ráðherra í sjálfu sér ekkert á óvart, að það hafi ekki verið búið að
    reikna eða horfa á heildarmyndina, hvernig hlutföllin myndu líta út eftir
    þessar aðgerðir. En gott og vel. Það er ekkert mál fyrir okkur í Framsókn
    að endurstilla reiknivélina og breyta forsendum. Staðan er bara eins og
    hún er í dag og við þurfum að horfast í augu við þær staðreyndir sem við
    erum að vinna með núna. Þær breytingar sem hugsanlega gætu orðið á
    fjárlagafrumvarpinu verða væntanlega í lok desember þegar við klárum
    fjárlögin. En það er mjög mikilvægt að hafa það í huga að bara þær
    hækkanir sem boðaðar eru í fjárlagafrumvarpinu þýða að það þyrfti rétt
    tæplega 4% launahækkun hjá þessu fólki sem ég nefndi í mínu fyrra dæmi til
    þess að ráða við þessa hækkun. Laun samtals hjá þessu unga pari þurfa að
    hækka um 55.000 kr. á mánuði <ns:bjalla/> til að ráða við þessa hækkun, þó
    að ég hafi talað um fyrir utan skatta. Þannig að það er mjög mikilvægt í
    þessu ljósi, frú forseti, að ráðherra fari í það <ns:bjalla/> og jafnvel
    leiti liðsinnis okkar í Framsókn og fái að kíkja í reiknivélina vegna þess
    að hún er ansi góð og þar eru margar góðar breytur sem hægt er að
    skoða.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>