<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="fél.- og húsnrh." frhr="0" id="r2026-10-08T14:33:09" skst="RÞI" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-08 14:34:38 -->

  <ns:umsýsla fundur="15" lgþ="158" tími="2026-10-08T14:33:09">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="78">
      <ns:málsheiti>áhrif af hækkunum á sköttum og gjöldum</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðari spurningu eða
    brýningu. Já, ég skal verða við hans ósk og kynna mér betur reiknivélina.
    Það hefur auðvitað margt gott verið gert, mörg góð vinna sem hefur verið
    unnin þó að það sé ekki endilega tengt þessari ríkisstjórn eða fyrri eða
    öðrum. Við höfum lagt á okkur vinnu t.d. varðandi húsnæðismálin, sem er
    stærsti einstaki kjaraliður hvers heimilis, við að leita fyrirmynda og
    leiða sem hafa gengið vel. Ég get t.d. nefnt starfshópinn sem á að skila
    af sér núna fyrir lok mars sem er að vinna tillögur að nýju
    húsnæðislánakerfi. Þar var m.a. stuðst við vinnu sem fyrri ríkisstjórn
    vann undir forystu Framsóknarflokksins. Við fögnum öllum hugmyndum og
    tillögum, sama hvaðan þær koma. En í grunninn þá erum við að vinna að mjög
    fjölbreyttum aðgerðum eins og þingmálaskráin okkar gefur sterklega til
    kynna og sömuleiðis líka að aðgerðum stjórnvalda sem koma inn í
    kjarasamninga. <ns:bjalla/> Það verða raunverulegar aðgerðir sem munu
    skipta raunverulegu máli, sérstaklega þegar kemur að húsnæðiskostnaði og
    uppbyggingu í almenna íbúðakerfinu.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>