<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-11-05T14:39:28" skst="DBE" tegflm="L" tegr="F" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-11-05 14:44:59 -->

  <ns:umsýsla fundur="27" lgþ="158" tími="2026-11-05T14:39:28">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="um" nr="160">
      <ns:málsheiti>Staðan á Gaza og Vesturbakkanum</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég kveð mér hér hljóðs í sérstakri umræðu sem
    ég þakka fyrir, um stöðu mála á Gaza og Vesturbakkanum, harmleik og
    hörmungar almennings af mannavöldum sem er af gríðarlegri stærðargráðu en
    vekja líka grundvallarspurningar um alþjóðalög, mannréttindi og
    sjálfsákvörðunarrétt þjóða. Á Gaza hafa, samkvæmt heilbrigðisyfirvöldum
    þar, meira en 74.600 Palestínumenn verið skráðir fallnir frá 7. október
    2023 og nær 176.000 særðir. UNICEF segir að a.m.k. 21.700 börn hafi fallið
    samkvæmt tölum frá því í sumar. Þótt vopnahlé hafi tekið gildi í október í
    fyrra heldur mannfallið áfram. Rúmlega 1.600 hafa verið skráðir fallnir
    síðan þá.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Edouard Beigbeder, yfirmaður UNICEF í Mið-Austurlöndum, sagði
    fyrir aðeins tveimur vikum, með leyfi forseta, að vopnahlé sem verndi ekki
    börn hafi brugðist þeim. Hann lýsti m.a. örlögum 14 ára drengs sem var
    skotinn til bana á leið heim úr námsmiðstöð UNICEF. Skólataskan lá eftir
    við hreyfingarlaust lík hans. Mannúðarástandið er jafnframt enn
    skelfilegt. Milljónir búa við ótryggt húsaskjól, skerta
    heilbrigðisþjónustu, skert skólahald og takmarkað aðgengi að nauðsynjum og
    þótt matvælaaðstoð hafi skilað árangri er hungur og vannæring enn
    alvarlegt vandamál. Vopnahlé sem við höfum vanist að heyra um í fréttum er
    ekki það sama og friður, sérstaklega ef það tryggir ekki vernd almennra
    borgara.</ns:mgr>

    <!--https://www.unicef.org/press-releases/statement-unicef-regional-director-middle-east-and-north-africa-edouard-beigbeder-7-->

    <ns:mgr>Á Vesturbakkanum blasir önnur en nátengd þróun við. Sameinuðu
    þjóðirnar skráðu 397 árásir ísraelskra landnema sem ollu meiðslum eða
    eignatjóni á fyrstu 26 dögum október. Það er met frá upphafi skráninga
    árið 2006. Palestínumenn eru hraktir frá heimilum sínum, landtökubyggðir
    stækka og grafið er þannig markvisst undan forsendum sjálfstæðs ríkis
    Palestínu. Volker Türk, mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna, varaði í
    síðustu viku við því að hótanir um að tæma og afmá heil hverfi á
    Vesturbakkanum vektu, með leyfi forseta, alvarlegar áhyggjur af
    þjóðernishreinsunum. Þá vaknar þessi grundvallarspurning: Hvernig er hægt
    að stuðla að varanlegum lausnum til friðar, tveggja ríkja lausn, við
    þessar aðstæður?</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég minni í fyrsta lagi á að Alþjóðadómstóllinn í Haag komst árið
    2024 að þeirri niðurstöðu í mikilvægu áliti að áframhaldandi vera og
    stjórn Ísraels á hernumdu palestínsku landsvæðunum væri ólögmæt samkvæmt
    alþjóðalögum. Í öðru lagi hefur Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn gefið út
    handtökuskipanir á hendur forsætisráðherra Ísraels og fyrrverandi
    varnarmálaráðherra vegna gruns um stríðsglæpi og glæpi gegn mannúð, m.a.
    fyrir að beita hungri sem hernaðaraðgerð með því að hindra mannúðaraðstoð
    og svipta almenna borgara matvælum, vatni og öðrum lífsnauðsynjum. Í
    þriðja lagi hefur óháð rannsóknarnefnd Sameinuðu þjóðanna komist að þeirri
    niðurstöðu að Ísrael hafi framið þjóðarmorð á Gaza. Það er niðurstaða
    nefndar, vissulega. Alþjóðadómstóllinn er með málið til umfjöllunar en
    dómur liggur ekki fyrir.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Við fordæmum auðvitað hryðjuverkaárás Hamas 7. október 2023,
    gríðarlegt mannfallið og gíslatökurnar, líkt og Alþingi raunar sameinaðist
    um að gera sama haust. Alþingi samþykkti 9. nóvember 2023 ályktun þess
    efnis en einnig um tafarlaust vopnahlé, vernd almennra borgara, lausn
    gísla, mannúðaraðstoð og rannsóknir á brotum á alþjóðalögum. Því miður eru
    margir þættir þessarar ályktunar enn í fullu gildi og knýjandi.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mig langar því að spyrja hæstv. utanríkisráðherra þriggja
    spurninga. Í fyrsta lagi: Hvernig metur ráðherra núverandi stöðu á Gaza og
    Vesturbakkanum og hvernig er Ísland að beita sér til að tryggja vernd
    almennra borgara, aðgengi hjálparstofnana og rannsóknir á alþjóðlegum
    brotum? Í öðru lagi: Telur ráðherra að útþensla ólögmætra landtökubyggða
    sé að gera sjálfstætt og lífvænlegt Palestínuríki illmögulegt og hvað er
    hægt að gera til að bregðast við? Í þriðja lagi vildi ég spyrja um það að
    í september undirritaði ráðherra ásamt 11 öðrum utanríkisráðherrum
    yfirlýsingu um aðgerðir gegn ólöglegum landtökubyggðum, m.a. mögulegar
    viðskiptatakmarkanir. Hefur leið í þessu efni verið valin? Ætlar Ísland að
    setja eigin reglur með lögum eða styðja sameiginlegar evrópskar aðgerðir
    og liggja þær fyrir eða fara báðar leiðir?</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ísland hefur lengi talað skýrt fyrir
    alþjóðalögum og sjálfsákvörðunarrétti þjóða. Staðan á Gaza og
    Vesturbakkanum og ráðaleysi og lömun alþjóðakerfisins er svartur blettur í
    sögunni sem ekki verður unað við að breytist ekki til batnaðar og það
    tafarlaust.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>