<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="utanrrh." frhr="0" id="r2026-11-05T15:14:05" skst="ÞKG" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-11-05 15:16:47 -->

  <ns:umsýsla fundur="27" lgþ="158" tími="2026-11-05T15:14:05">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="um" nr="160">
      <ns:málsheiti>Staðan á Gaza og Vesturbakkanum</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég vil þakka fyrir þessa umræðu en reyna að
    nýta tímann í að svara að hluta til því sem hefur komið fram. Ég vil byrja
    á því að þakka málshefjanda fyrir afbragðsgott innlegg. Ég vil líka fá að
    hrósa öðrum sem hafa tekið þátt í þessari umræðu, bæði Framsóknarflokknum
    og Sjálfstæðisflokknum í stjórnarandstöðu þar sem var verið að hvetja
    okkur til að beita okkar rödd. Ég held að það sé eitt sterkasta tækið sem
    við höfum og það hef ég reynt að gera. Við höfum, m.a. í tengslum við
    Norðurlöndin — við erum ekki öll alveg nákvæmlega sammála um nálgunina en
    við erum öll sammála um að vera einhuga í því og vinna að því að koma
    mannúðaraðstoð á svæðið. Það er ekkert launungarmál að Ísland og Noregur
    eru að taka ákveðnari skref. Hvað Ísland varðar, eins og ég hef sagt áður,
    þá gengum við inn í mál Suður-Afríku gegn Ísrael fyrir Alþjóðadómstólnum
    sem m.a. veltur á því hvernig þjóðarmorðsskilgreiningin verður tekin
    áfram.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Svar að hluta til við spurningu sem kom frá hv. þm. Höllu Hrund
    Logadóttur: Já, ég held að kosningarnar í Bandaríkjunum veiti eitthvert
    svigrúm til að Ísrael geti ekki haft óendanlegt bakland hjá Bandaríkjunum
    til að haga sér eins og þeir hafa hagað sér, sem er ófyrirgefanleg hegðun
    af því að þeir eru að brjóta aftur og aftur alþjóðalög eins og hegðun
    þeirra er á Gaza og núna á Vesturbakkanum. Þannig að já, mér finnst gott
    að finna það að hér er ákveðin skýr lína í þinginu um það að halda áfram
    að þrýsta, taka áfram þessi skref fyrir mannúðina, fyrir tveggja ríkja
    lausnina, að vera hugrökk að halda áfram og þora að halda áfram að tala
    fyrir tveggja ríkja lausninni. Ég vona að það verði til þess að það verði
    þrýstingur settur á Ísrael til að vinna að því.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hitt er eitthvað sem kemur mér ekki á óvart, að til að mynda
    Miðflokkurinn, ekki til að mynda: bara Miðflokkurinn, hann nýtti bara eina
    ræðu og að mínu mati skilaði auðu í þessu máli eins og öllum málum sem
    snerta mannréttindi. Mér finnst það miður. En á móti fagna ég annarri
    breiðri samstöðu í þessu máli. Ég ætla ekki að hika við að segja hlutina
    eins og þeir eru, ég er bara orðin of gömul í annað, að þarna, eins og
    staðan er núna fyrir botni Miðjarðarhafs og þeir sem hafa stjórnað
    Ísraelsríki eins og Netanjahú, mér finnst þetta vera siðferðislegir
    hugleysingjar sem geta ekki sest niður og samið um réttlátan og varanlegan
    frið, ekki síst á grunni mannréttinda og mannúðarlaga.
    <ns:frammíkall>Heyr, heyr.</ns:frammíkall></ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>