<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="fjmrh." frhr="0" id="r2026-11-20T13:42:13" skst="DMK" tegflm="R" tegr="F" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-11-20 13:50:51 -->

  <ns:umsýsla fundur="36" lgþ="158" tími="2026-11-20T13:42:13">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="329">
      <ns:málsheiti>skattar og gjöld</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingar á
    ýmsum lögum um skatta, gjöld o.fl. Með frumvarpinu eru lagðar til
    breytingar á skatta- og tollalöggjöf. Við vinnslu þess var haft samráð við
    atvinnuvegaráðuneytið og Skattinn vegna einstakra ákvæða
    frumvarpsins.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Fyrst vil ég nefna að lagðar eru til breytingar á skattalegri
    meðferð gjafa og framlaga til lögaðila sem starfa til almannaheilla.
    Markmið breytinganna er annars vegar að einfalda framkvæmd með því að
    skýra og afmarka frádráttarbærni gjafa og framlaga þannig að meginreglan
    verði sú að frádráttur grundvallist á framlögum í reiðufé. Með því er
    dregið úr álitaefnum um verðmat við framlög í formi eigna og tryggt að
    frádráttur taki fyrst og fremst til framlaga sem unnt er að staðreyna á
    skýran og sambærilegan hátt.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Jafnframt er gert ráð fyrir þeirri undantekningu að framlög í
    formi lausafjár, þ.e. einstakra gjafa, geti fallið undir
    frádráttarheimildina. Það er háð því skilyrði að virði einstaks hlutar
    nemi hærri fjárhæð en 2 millj. kr. og skal það verðmat staðfest af
    löggiltum endurskoðanda enda sé ekki til að dreifa fullnægjandi
    fylgiskjölum um verðmæti hvers hlutar, svo sem kaup- eða sölureikningum,
    dagsettum innan tólf mánaða frá veitingu gjafar eða framlags.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hins vegar er lagt til að styrkja viðurlaga- og eftirlitsúrræði
    ríkisskattstjóra með því að skilyrði fyrir skráningu lögaðila og
    almannaheillaskrár séu uppfyllt og að styrkir sem berast skráðum lögaðilum
    séu nýttir í samræmi við almannaheillastarfsemi sem skráningin byggir
    á.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Forseti. Í frumvarpinu er skattaleg meðferð tekna fyrir minni
    háttar tilfallandi verkefni einfölduð og dregið úr óvissu um mörk gagnvart
    atvinnurekstri og sjálfstæðri starfsemi. Það er gert með því að heimila að
    draga 30% frá heildarendurgjaldi í stað frádráttarkostnaðar við öflun
    teknanna enda sé samanlagt endurgjald fyrir öll slík verkefni ekki hærra
    en 2 millj. kr. á ári. Reglunni er ætlað að taka til afmarkaðra verkefna
    sem einstaklingar taka að sér öðru hverju og byggjast fyrst og fremst á
    persónulegu vinnuframlagi þeirra. Verkefnin þurfa að vera unnin utan
    ráðningarsambands og mega ekki vera þáttur í atvinnustarfsemi eða
    sjálfstæðri starfsemi sem einstaklingurinn hefur að öðru leyti með
    höndum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Fjárhæðarmörk reglunnar eru samræmd lögum um virðisaukaskatt og
    miðast því við 2 millj. kr. á ári. Með samræmdum mörkum verður skattaleg
    meðferð einfaldari og fyrirsjáanlegri og dregið úr óvissu um hvenær
    almennar reglur um atvinnurekstur taka við. Samræming fjárhæðanna er
    þannig mikilvægt skref í átt að einfaldari og skýrari reglum um minni
    háttar persónuleg aukaverkefni. Einstaklingar sem telja sig stunda
    atvinnurekstur geta áfram skráð rekstur og þá gilda almennar reglur um
    skattlagningu hans.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Forseti. Í frumvarpinu er að finna breytingartillögu í tengslum
    við staðfestingu á skattfrelsi vinninga í happdrættum. Skilyrði sem sett
    eru fyrir leyfisveitingu happdrætta samkvæmt lögum um happdrætti eru
    sambærileg þeim sem koma fram í ákvæði laga um tekjuskatt sem fjallar um
    frádrátt manna frá tekjum utan atvinnurekstrar vegna skattfrjálsra
    vinninga í happdrættum. Eðlilegt þykir og til aukins skýrleika að um
    skilyrðin sé vísað til laga um happdrætti. Það tryggir jafnframt að ekki
    skapist ósamræmi milli áðurnefndra laga.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Forseti. Næst koma breytingar á ákvæðum laga um bindandi álit í
    skattamálum. Samkvæmt lögum er ekki heimilt að óska eftir bindandi áliti
    um skattaleg áhrif ráðstafana sem þegar hafa verið gerðar. Lagt er til að
    skýrt verði kveðið á um að lögin taki einungis til álitamála sem varða
    framtíðarálagningu skatta og gjalda sem ríkisskattstjóra er falin
    framkvæmd á enda sé sú álagning kæranleg til yfirskattanefndar.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Jafnframt er lagt til að lögin taki ekki til tollamála en um
    bindandi álit í þeim málaflokki fer samkvæmt tollalögum. Þá er lagt til að
    tilgreind verði í dæmaskyni tilvik sem sæta myndu og sæta ættu frávísun og
    er það til þess fallið að auka á skýrleika og fyrirsjáanleika og draga úr
    beiðnum sem fyrir liggur að vísa beri frá. Að lokum er í takt við rafræna
    stjórnsýslu lagt til að ríkisskattstjóra verði heimilt að senda bindandi
    álit rafrænt eða eftir atvikum á öðru formi.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Forseti. Þá eru lagðar til breytingar á fernum skattalögum í
    samræmi við lög um breytingu á lögum er varða rannsókn og saksókn
    skattalagabrota. Í þeim lögum voru gerðar þær breytingar að embætti
    skattrannsóknarstjóra ríkisins og ríkisskattstjóra sameinuðust í Skattinn
    og lýkur nú meiri hluta skattrannsóknarmála með fésekt hjá stofnuninni
    nema máli sé vísað til meðferðar hjá lögreglu samkvæmt fyrirmælum
    ríkissaksóknara. Með lögunum var jafnframt gerð sú breyting að
    yfirskattanefnd tekur nú ekki frumkvæðisákvarðanir um fjárhæð sekta vegna
    skattalagabrota. Með því fékkst endurskoðun innan stjórnsýslunnar á
    ákvörðun sekta, svo sem almennt gildir innan stjórnsýslukerfis skattamála.
    Ljóst er að orðalag í skattalöggjöf hefur ekki verið fyllilega samræmt og
    lagað að breyttri framkvæmd sem gerð var á hlutverki skattrannsóknarstjóra
    og yfirskattanefndar og eru lagðar til breytingar því til
    lagfæringar.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Forseti. Þá eru í frumvarpinu lagðar til breytingar á tollalögum
    sem fela í sér tímabundna heimild fyrir leyfishafa tollfrjálsrar verslunar
    til að halda áfram sölu til komu- og brottfararfarþega í sama sölurými.
    Samkvæmt lögum skal verslun fyrir komufarþega vera sérstaklega afmörkuð og
    einungis aðgengileg farþegum og áhöfnum sem koma til landsins. Tillagan
    tekur aðeins til leyfishafa sem fengið hafa starfsleyfi fyrir 1. janúar
    2027 og reka þegar slíka verslun í sameiginlegu sölurými við gildistöku
    laganna. Á landsbyggðinni, þar sem millilandaflug er enn í uppbyggingu,
    geta aðstæður í flugstöð takmarkað möguleika á að koma upp aðskildum
    sölurýmum fyrir komu- og brottfararfarþega. Tollfrjáls verslun getur verið
    mikilvægur þáttur í þjónustu við farþega og áframhaldandi uppbyggingu
    millilandaflugs. Með tillögunni er leitast við að tryggja samfellu í
    þeirri þjónustu sem nú þegar hefur verið útbúin og veitt á meðan forsendur
    fyrir varanlegri aðstöðu eru metnar. Heimildin gildir til 1. janúar 2032
    og felur ekki í sér almenna eða varanlega undanþágu frá kröfu laganna um
    aðgreind sölurými.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Forseti. Lögð er til eins árs framlenging á gildistíma ákvæðis til
    bráðabirgða EE í búvörulögum þannig að það gildi út árið 2027. Í ákvæðinu
    er kveðið á um tímabil sem afmarka lægri innflutningstolla á tilteknar
    tegundir grænmetis. Framlengingin kann að hafa í för með sér lægri
    tolltekjur ríkissjóðs en umfang þeirra áhrifa ræðst af innflutningsmagni
    og tollmun á viðkomandi vörum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Forseti. Í frumvarpinu er að lokum lagðar til lagfæringar á
    tilvísunum til laga og lagagreina sem felldar hafa verið brott eða tekið
    breytingum. Þær breytingar eru tæknilegs eðlis og þeim er ekki ætlað að
    hafa efnisleg áhrif.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Breytingartillögur frumvarpsins eru fyrst og fremst til þess
    fallnar að skýra og einfalda reglur, laga löggjöf að breyttri stjórnsýslu
    og gildandi rétti og bæta fyrirsjáanleika í framkvæmd. Ekki er gert ráð
    fyrir að þær hafi veruleg bein áhrif á tekjur eða útgjöld ríkissjóðs.
    Áhrif breytinga á tekjur ríkissjóðs í heild eru því talin
    takmörkuð.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Forseti. Að þessu sögðu legg ég til að frumvarpi þessu verði vísað
    til hv. efnahags- og viðskiptanefndar og 2. umræðu að lokinni þessari
    umræðu.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>