<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="forsrh." frhr="0" id="r2026-11-23T13:45:16" skst="KFrost" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-11-23 13:46:31 -->

  <ns:umsýsla fundur="37" lgþ="158" tími="2026-11-23T13:45:16">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="223">
      <ns:málsheiti>leiðir til lækkunar verðbólgu og ofkæling í
      hagkerfinu</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég verð að segja enn og aftur að ég gef lítið fyrir
    þessa hagspeki. Eðli málsins samkvæmt er það þannig að við erum með
    sveigjanlegan vinnumarkað, við erum innan EES. Það þýðir að hingað kemur
    fólk þegar það er mikill hagvöxtur og sveigjanleikinn felur það í sér að
    þessi mikla fólksfjölgun — að þegar kerfið kólnar þá fer það úr landi. Það
    er það sem sveigjanlegur vinnumarkaður býður upp á. Það er ekki óeðlilegt.
    Það var keyrt hér á fólksfjölgun fyrst og fremst í vinnuaflsfrekum greinum
    í einhvern tíma. Það skapaði hagvöxt en það reyndi líka mikið á kerfið. Nú
    hefur hægt á þessari fólksfjölgun. Það sést m.a. í tölum varðandi
    fasteignamarkaðinn og það gerir það að verkum að dýnamíkin er þægilegri í
    kerfinu. Þetta er bara einföld hagfræði.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Varðandi það hvort við ætlum að koma með lausn í staðinn fyrir að
    eyða tímanum hér í bókun. Lausnin er komin, hún er afgreidd, hún fer fyrir
    ríkisstjórn á morgun. Hún kemur inn í fjárlaganefnd í kjölfarið og felur í
    sér hallalaus fjárlög. Við erum búin að vera að eyða tímanum baksviðs með
    meiri hluta fjárlaganefndar og með öðrum aðilum, m.a. í að tryggja að við
    afgreiðum hallalaus fjárlög. <ns:bjalla/> Við þurfum ekki að eyða meiri
    tíma í það, ríkisstjórnin, en núna tekur þingið við og tekur vonandi vel
    við enda hlýtur þetta að vera markmið formanns Miðflokksins líka.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>