<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="utanrrh." frhr="0" id="r2026-11-23T13:45:53" skst="ÞKG" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-11-23 13:50:24 -->

  <ns:umsýsla fundur="37" lgþ="158" tími="2026-11-23T13:49:00">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="224">
      <ns:málsheiti>Ráðning verktaka til pólitískrar ráðgjafar</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Það er alveg á hreinu að það var farið eftir
    öllum reglum þegar ráðgjafi var ráðinn. Það er rétt að undirstrika það,
    sem hefur ekki komið nægilega vel fram, m.a. í fyrirspurn hv. þingmanns,
    að á meðan var ég ekki með annan aðstoðarmann þannig að kostnaður ríkisins
    jókst ekki. Það er rétt að taka fram að hinn tímabundni samningur við
    Nebraska var undir viðmiðunarmörkum sem eru í lögum um opinber innkaup.
    Ákvæði laganna um hugsanlega útilokun aðila frá þátttökuferli á grundvelli
    fjárhagslegs hæfis eiga ekki við í þessu tilviki. Það var algjörlega farið
    eftir reglum við ráðningu Heiðu Kristínar Helgadóttur. Það sem hefur verið
    sagt og m.a. sett fram í <ns:skáletrað>Morgunblaðinu</ns:skáletrað> og
    komið fram þar er ekki rétt, þar er hallað réttu máli.</ns:mgr>

    <!--segir "þar er ekki hallað réttu máli"/st.-->

    <ns:mgr>Síðan vil ég svara sérstaklega líka því sem var spurt að varðandi
    munnlega samninginn sem síðan var gerður eftir að þjóðaratkvæðagreiðslan
    átti sér stað. Það var einfaldlega þannig að það þurfti að klára og hnýta
    lausa enda gagnvart atkvæðagreiðslu sem hafði ekki átt sér stað í sögunni.
    Það þurfti að klára ýmis mál og það er alsiða og alkunna að það er oft
    gert og ég undirstrika að það var farið eftir öllum lögum, öllum reglum
    sem viðkoma þessu máli.</ns:mgr>

    <!--veit ekki hvað hún á við með þessu "hafði ekki átt sér stað í sögunni", þori ekki að hreyfa neitt við því./st.-->
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>