157. löggjafarþing — 28. fundur. upptaka fjárhagslegs ágóða af brotum o.fl.
meðferð sakamála o.fl., 2. umræða.
nál. m. brtt., 103. mál. — Þskj. 259, stjfrv. 103.

ATKVÆÐAGREIÐSLA

[15:44]

[15:42]
Sigríður Á. Andersen (M) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Miðflokkurinn telur mjög brýnt að hart sé tekið á skipulagðri glæpastarfsemi og efnahagsbrotum almennt og styður í sjálfu sér frumvarpið og framgöngu þess að mestu leyti. Hins vegar eru í 1. gr. frumvarpsins gerðar verulegar og grundvallarbreytingar á valdheimildum ákæruvaldsins er varða aðgang að trúnaðargögnum og ekki má ráða af umfjöllun nefndar að það hafi verið rætt í þaula. Það má velta því fyrir sér hvort þessi lagabreyting sé tímabær í ljósi þeirra dæma sem streyma nú inn um verulega misnotkun ákæruvalds og lögreglu á valdheimildum sínum þegar kemur að rannsókn einkum og sér í lagi efnahagsbrota. Ég hefði talið hefði farið betur á því að hv. allsherjar- og menntamálanefnd hefði rætt þau mál til þaula og hinkrað með þessa miklu lagabreytingu þar til að (Forseti hringir.) frekari upplýsingar eru komnar upp um þau mál öll og í því ljósi situr Miðflokkurinn hjá við afgreiðslu 1. gr. þessa frumvarps.



[15:43]
Sigurður Örn Hilmarsson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Markmið þessa frumvarps er að vinna gegn skipulagðri glæpastarfsemi og gegn fjármögnun hryðjuverka en ekki síður að endurheimta ávinning af slíkri starfsemi. Með samþykkt frumvarpsins er verið að vinna að því að uppfylla enn fremur alþjóðlegar skuldbindingar sem hvíla á okkur Íslendingum og breyta lögunum í samræmi við það sem tíðkast á Norðurlöndunum. Við veitingu slíkra valdheimilda er mjög mikilvægt að gæta jafnvægis á milli þeirra hagsmuna sem eru undir; annars vegar réttaröryggi borgaranna og hins vegar hagsmuna samfélagsins að upplýsa um ólögmæta brotastarfsemi. Við teljum að í þessu frumvarpi sé það jafnvægi slegið með réttum tón enda lúta ákvarðanir um málefnið ströngum lagaramma um meðferð sakamála og því ætlum við að greiða atkvæði með þessu frumvarpi.



Brtt. í nál. 2591 samþ. með 45 shlj. atkv. og sögðu

  já:  AMJ,  ArnaJ,  BHar,  DagH,  DBE,  DME,  EBB,  EÍF,  GrímG,  GE,  GÞÞ,  GAS,  GIK,  GHaf,  GylfÓ,  HHL,  IIsak,  IngÞ,  JPJ,  JGnarr,  JPZ,  JBÓ,  KÁB,  KÞS,  KFrost,  LRM,  PawB,  RÞI,  SGuðm,  SigurjÞ,  SHP,  SIJ,  SÖH,  SSB,  SVS,  SæunG,  TÞÞ,  VilÁ,  VíðR,  ÓA,  ÞorbG,  ÞKG,  ÞórP,  ÞórdG,  ÞSv.
7 þm. (IngD,  KGH,  NMG,  SDG,  SÁA,  SMás,  ÞorgS) greiddu ekki atkv.
11 þm. (AMöll,  BergÓ,  EyjÁ,  HKF,  IngS,  JGH,  JGunn,  LE,  NTF,  RGuðb,  ÁBH) fjarstaddir.

 1. gr., svo breytt, samþ. með 45 shlj. atkv. og sögðu

  já:  AMJ,  ArnaJ,  BHar,  DagH,  DBE,  DME,  EBB,  EÍF,  GrímG,  GE,  GÞÞ,  GAS,  GIK,  GHaf,  GylfÓ,  HHL,  IIsak,  IngÞ,  JPJ,  JGnarr,  JPZ,  JBÓ,  KÁB,  KÞS,  KFrost,  LRM,  PawB,  RÞI,  SGuðm,  SigurjÞ,  SHP,  SIJ,  SÖH,  SSB,  SVS,  SæunG,  TÞÞ,  VilÁ,  VíðR,  ÓA,  ÞorbG,  ÞKG,  ÞórP,  ÞórdG,  ÞSv.
7 þm. (IngD,  KGH,  NMG,  SDG,  SÁA,  SMás,  ÞorgS) greiddu ekki atkv.
11 þm. (AMöll,  BergÓ,  EyjÁ,  HKF,  IngS,  JGH,  JGunn,  LE,  NTF,  RGuðb,  ÁBH) fjarstaddir.

 2.–12. gr. samþ. með 52 shlj. atkv.

Brtt. í nál. 2592 samþ. með 52 shlj. atkv.

 13. gr., svo breytt, samþ. með 52 shlj. atkv.

 14.–15. gr. samþ. með 52 shlj. atkv.