[13:36]
Beiðni leyfð til umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra með 57 shlj. atkv. og sögðu
Virðulegur forseti. Ég tel að þetta sé í fyrsta skipti sem ástæða hefur verið til að koma með nokkurn veginn sömu skýrslubeiðnina aftur. Það er alvarlegt mál, virðulegi forseti, þegar jafn einbeittur brotavilji er hjá ráðuneyti sem fær svona skýrslubeiðni. Hér var skýrsla send inn, hún svaraði öllu nema því sem spurt var um. Það er ástæða fyrir því að í þingsköpum er heimild fyrir hv. þingmenn til að biðja um upplýsingar í formi skýrslu. Þær upplýsingar sem hér er beðið um — og við höfum tekið þá ákvörðun að reyna að skrifa þetta þannig að ekki sé nokkur einasta leið að misskilja það, hér er verið að fara fram á það, sem er mikilvægt, að þingheimur og þjóð viti hvernig þau samtök og systursamtök þeirra sem fá styrki hjá hinu opinbera ganga fram í kærumálum þegar kemur að orkumannvirkjum. Það er mjög mikilvægt að fá greinargott yfirlit yfir þetta. (Forseti hringir.) Þessar upplýsingar eru í ráðuneyti umhverfis-, orku- og loftslagsmála og (Forseti hringir.) það er hægur vandi fyrir það ráðuneyti að sækja þær upplýsingar þannig (Forseti hringir.) að við förum aftur fram á það að fá þessar upplýsingar sem við fengum ekki í síðustu skýrslu þó að við hefðum beðið um þær.