145. löggjafarþing — 168. fundur.
opinber innkaup, frh. 3. umræðu.
stjfrv., 665. mál (heildarlög, EES-reglur). — Þskj. 1734, nál. m. brtt. 1746.

ATKVÆÐAGREIÐSLA

[11:53]

[11:50]
Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Það er ánægjulegt að sjá að það virðist vera, í það minnsta miðað við nefndarálitið, góð samstaða um þetta mál. Hér er um það að ræða að við erum að stíga skref til þess að gera opinberum stofnunum auðveldara að fara í opinber innkaup í samstarfi við aðrar stofnanir í öðrum löndum. Við erum líka að auðvelda þeim aðilum sem eiga viðskipti við opinbera aðila að leita réttar síns, þeir þurfa þá ekki að gera það beint heldur geta gert það í gegnum félagasamtök. En stóra einstaka málið er að við höldum hér áfram á þeirri braut sem hefur verið mörkuð á þessu kjörtímabili að ná hagkvæmari innkaupum fyrir opinbera aðila og spara þar af leiðandi skattfé almennings. Að sama skapi ýtum við undir heilbrigðari viðskiptahætti og samkeppni í landinu. Það er því með mikilli ánægju sem ég segi já við þessu frumvarpi.



[11:51]
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (Vg) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Þetta er um margt ágætt mál og ég stend að nefndarálitinu með fyrirvara sem ég vil gera hér grein fyrir. Hann snýr fyrst og fremst að sveitarfélögunum þar sem ég hef haldið því á lofti að þau eigi að fá að njóta þess að vera innan sinna eigin reglna en ekki að falla undir þær reglur sem hér er verið að setja fram. Það er tvennt í þessu, annars vegar viðmiðunarfjárhæðirnar og síðan er það kærunefndin en ég hef haft áhyggjur af því eins og sveitarfélögin að málum geti fjölgað mikið og þetta verði töluverður kostnaðarauki fyrir sveitarfélögin og framkvæmdir geti tafist. Þar sem verktíminn er gjarnan mjög stuttur hjá sveitarfélögunum finnst mér ekki tilhlýðilegt að þau séu þarna undir. Af þessum sökum munum við vinstri græn sitja hjá.



Brtt. í nál. 1746,1–3 samþ. með 47 shlj. atkv. og sögðu

  já:  ÁPÁ,  ÁsF,  BÁ,  BirgJ,  BjG,  BjÓ,  BP,  BN,  EKG,  ELA,  EyH,  FSigurj,  GÞÞ,  GStein,  GBS,  HarB,  HE,  IllG,  JMS,  JónG,  KG,  KJak,  LínS,  MGM,  ÓBK,  ÓÞ,  ÓP,  PVB,  PJP,  REÁ,  RR,  RM,  SÁA,  SII,  SigrM,  SIJ,  SilG,  SÞÁ,  SSv,  UBK,  VBj,  ValG,  VilÁ,  VilB,  WÞÞ,  ÞorS,  ÞórE.
1 þm. (HallM) greiddi ekki atkv.
15 þm. (ÁsmD,  ÁstaH,  BjarnB,  HBK,  HHj,  HöskÞ,  KÞJ,  KLM,  LRM,  OH,  SDG,  SJS,  VigH,  ÖJ,  ÖS) fjarstaddir.

Frv., svo breytt, samþ. með 43 shlj. atkv. og sögðu

  já:  ÁPÁ,  ÁsF,  BÁ,  BirgJ,  BjÓ,  BP,  BN,  EKG,  ELA,  EyH,  FSigurj,  GÞÞ,  GStein,  GBS,  HallM,  HarB,  HE,  IllG,  JMS,  JónG,  KG,  LínS,  MGM,  ÓBK,  ÓÞ,  ÓP,  PVB,  PJP,  REÁ,  RR,  RM,  SÁA,  SigrM,  SIJ,  SilG,  UBK,  VBj,  ValG,  VilÁ,  VilB,  WÞÞ,  ÞorS,  ÞórE.
4 þm. (BjG,  KJak,  SÞÁ,  SSv) greiddu ekki atkv.
16 þm. (ÁsmD,  ÁstaH,  BjarnB,  HBK,  HHj,  HöskÞ,  KÞJ,  KLM,  LRM,  OH,  SDG,  SII,  SJS,  VigH,  ÖJ,  ÖS) fjarstaddir.