49. fundur
allsherjar- og menntamálanefndar á 143. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 25. febrúar 2014 kl. 09:00


Mættir:

Páll Valur Björnsson (PVB) 1. varaformaður, kl. 09:00
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS) 2. varaformaður, kl. 09:00
Elsa Lára Arnardóttir (ELA), kl. 09:00
Guðbjartur Hannesson (GuðbH), kl. 09:00
Helgi Hrafn Gunnarsson (HHG), kl. 09:28
Jóhanna María Sigmundsdóttir (JMS), kl. 09:39
Svandís Svavarsdóttir (SSv), kl. 09:00
Valgerður Gunnarsdóttir (ValG) fyrir UBK, kl. 09:00
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 09:00

Vilhjálmur Árnason vék af fundi vegna annarra þingstarfa kl. 10:44.
Elsa Lára Arnardóttir vék af fundi vegna annarra þingstarfa kl. 11:05.
Helgi Hrafn Gunnarsson vék af fundi vegna annarra þingstarfa kl. 11:22.

Nefndarritari: Kristín Einarsdóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:00
Dagskrárlið frestað.

2) 246. mál - opinber skjalasöfn Kl. 09:02
Á fund nefndarinnar komu Þórður Sveinsson og Hörður Helgason frá Persónuvernd, Guðrún Birna Guðmundsdóttir, Sigurður Þór Baldvinsson, Alexandra Þórlindsdóttir og Edda Rúna Kristjánsdóttir frá félagi skjalastjóra Stjórnarráðsins og Árni Daníel Júlíusson frá Sagnfræðingafélagi Íslands. Fóru þau yfir frumvarpið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) Önnur mál Kl. 11:42
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:42