Virðulegi forseti. Spurt er um aðferðafræði. Nú eru óvenjulegir tímar og þingið starfar með óvenjulegum hætti og því er hvorki almenningi né þingmönnum stjórnarandstöðunnar fullkomlega ljóst hvernig ríkisstjórnin vinnur að sínum málum. Af þeim sökum vil ég spyrja hæstv. ráðherra hvernig vinnulagi er háttað við gerð þessara aðgerðapakka og hver aðferðafræði hæstv. ríkisstjórnar er. Hvernig eru þessar aðgerðir teknar saman? Hverjir eru efnahagslegir ráðgjafar ríkisstjórnarinnar og hvaða sviðsmyndagreiningar, ef einhverjar, liggja að baki aðgerðapökkum ríkisstjórnarinnar?
Herra forseti. Í lögum um Stjórnarráð Íslands er gert ráð fyrir að ávallt sé starfandi ráðherranefnd um ríkisfjármál og ráðherranefnd um efnahagsmál. Það hefur verið ráðherranefnd um ríkisfjármál sem hefur haldið utan um undirbúning aðgerða sem stjórnvöld hafa kynnt. Þær byggja að sjálfsögðu annars vegar á þeim sérfræðingum sem eru í ráðuneytum Stjórnarráðsins, þá ekki síst fjármála- og efnahagsráðuneytis, og hins vegar þeirri vinnu sem unnin er m.a. á vettvangi Seðlabanka Íslands, Hagstofu Íslands og fleiri fagstofnana sem við styðjumst við í allri okkar stefnumótun. Síðan er það ráðherranefnd um efnahagsmál sem kemur saman sömuleiðis og fer þá yfir stærri myndina, getum við sagt, í efnahagsmálum þjóðarinnar. Þær aðgerðir sem stjórnvöld hafa kynnt hafa verið undirbúnar á vettvangi ráðherranefndar um ríkisfjármál sem hefur það hlutverk samkvæmt lögum um Stjórnarráðið og styðst að sjálfsögðu við alla þá sérfræðiþekkingu sem er inni í ráðuneytunum.
Fyrir ráðherranefndirnar hefur unnið stýrihópur ráðuneytisstjóra og hann hefur skipað undirhópa sem annars vegar hafa fengist við hagrænu hliðarnar og hins vegar félagslegu hliðarnar. Að sjálfsögðu hefur sá hópur tekið tillit til ýmissa atriða því við, eins og allir aðrir þingmenn, fáum töluvert mikið af ábendingum og hugmyndum frá bæði einstaklingum, hagsmunasamtökum og til að mynda hafa aðilar vinnumarkaðarins komið með töluvert af hugmyndum inn í þessa vinnu. Hún hefur verið kynnt annars vegar á vettvangi þjóðhagsráðs þar sem aðilar vinnumarkaðarins og fulltrúar sveitarfélaganna sitja og hins vegar hef ég haldið nokkra fundi með formönnum flokka og kynnt þá vinnu sem hefur verið unnin.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Ég falast enn þá eftir því að heyra hvort einhverjar sviðsmyndagreiningar liggi fyrir og séu notaðar við mat á aðgerðum, hvort þær hafi verið unnar og ef svo er, hvort þingið megi náðarsamlegast fá aðgengi að þeim.
Þar að auki langar mig að spyrja hæstv. forsætisráðherra hvort einhver umræða hafi átt sér stað innan ríkisstjórnarinnar um hagsmunamat ráðherra gagnvart þeim aðgerðum sem verið er að hrinda í framkvæmd akkúrat núna. Hefur ríkisstjórnin rætt um einhver hagsmunatengsl innan sinna raða? Hefur það komið til tals að mögulega séu ráðherrar á a.m.k. á gráu svæði þegar kemur að hæfi þeirra til að framkvæma þessar aðgerðir vegna tengsla við fyrirtæki sem aðgerðir ríkisstjórnarinnar hafa veruleg áhrif á? Hefur þetta verið rætt eða kemur til greina að ræða það?
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir. Eins og komið hefur fram í máli mínu áður hér þá liggja fyrir ákveðnar sviðsmyndir og fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur mætt á fund efnahags- og viðskiptanefndar og farið yfir þær sviðsmyndir sem liggja fyrir. En eins og ég hef líka margítrekað er mér sagt það af nefndarmanni í efnahags- og viðskiptanefnd og ég get ekki sagt nákvæmlega til um það en ég vænti þess að nefndin hafi kallað ráðuneytið til, til þess að fara yfir út frá hvaða sviðsmyndum er unnið. Mér þætti það skrýtið ef nefndin hefði ekki gert það. Sömuleiðis liggja fyrir þær hagspár sem Seðlabankinn hefur kynnt á opinberum vettvangi, sem eru auðvitað mjög mikilvæg gögn í þessu. Það eru sömu gögn og við öll höfum séð. Ég vil bara ítreka að um þetta er svo mikil óvissa að það er mjög erfitt að tala beinlínis um spár heldur er meira verið að horfa til sviðsmynda þar sem er miðað við hvað það þýði ef við segjum til að mynda að ferðaþjónustan taki ekki við sér á þessu ári og eitthvað slíkt. Þar getum við aldrei talað um spádóma.(Forseti hringir.)
Hv. þingmaður spyr hér um hagsmuni ráðherra. (Forseti hringir.) Auðvitað geta ráðherrar sagt sig frá málum er varða þeirra persónulega hagsmuni og um það eru dæmi. (Forseti hringir.) Það hefur ekki gerst í tengslum við þessar aðgerðir.