156. löggjafarþing — 33. fundur.
lokun Janusar endurhæfingar og úrræði fyrir ungmenni með fjölþættan vanda.

[15:19]
Ingibjörg Isaksen (F):

Virðulegi forseti. Nú eru um 30 dagar þar til Janusi endurhæfingu verður lokað, úrræði sem hefur veitt sérhæfða, samþætta og árangursríka geðendurhæfingu fyrir ungt fólk með fjölþættan vanda. Yfirfærslan sem átti að vera hafin um páska má segja að sé varla hafin yfir höfuð. Einstaklingum hefur jú verið boðið viðtal en vita ekki enn hvað tekur við og fá misvísandi og óljósar upplýsingar. Þetta er hópur sem þolir hvorki óvissu né breytingar. Nú bætist við að fjölmörgum hefur verið neitað um endurhæfingarlífeyri frá TR vegna þess að engin viðurkennd áframhaldandi þjónusta liggur fyrir. Við erum að tala um einstaklinga sem eru að fá synjun um endurhæfingarlífeyri ekki af því að þeir hætta sjálfir í úrræði heldur af því að stjórnvöld eru að loka úrræði án þess að annað sambærilegt sé tilbúið. Því bætist nú við fjárhagsóvissa ofan á allt saman. Stjórn Janusar endurhæfingar hefur nú óskað eftir formlegum samningaviðræðum við viðkomandi ráðuneyti þar sem boðið er til samtals með tillögu um lausn. Þar er bent á að tíminn sé naumur og að brýnt sé að tryggja samfellu og áframhaldandi þjónustu við ungmenni með flókinn geðrænan og félagslegan vanda. Nú liggur ábyrgð á endurhæfingu hjá ráðherra. Því spyr ég: Er hæstv. ráðherra reiðubúinn að kalla til fundar með Janusi og viðkomandi ráðherrum í þessari viku til að tryggja áframhaldandi þjónustu fyrir þennan hóp og koma í veg fyrir þjónusturof?



[15:21]
félags- og húsnæðismálaráðherra (Inga Sæland) (Flf):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Ingibjörgu Isaksen fyrir þessa góðu fyrirspurn og ég ber mikla virðingu fyrir hv. þingmanni sem hefur verið ötull talsmaður þessa verkefnis. Ég vil samt sem áður ítreka að þessu verkefni var sagt upp í tíð hennar flokksbróður, þáverandi heilbrigðisráðherra, Willums Þórs Þórssonar. Eins og hv. þingmaður talar um þá er hér í mörgum tilvikum um mjög svo geðrænan og erfiðan vanda að etja sem heyrir í rauninni beinustu leið undir heilbrigðisráðherra. Inn á borð til mín hefur þetta mál aldrei komið sem slíkt. Þetta hefur verið samningur við Janus á milli heilbrigðisráðuneytis og VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs sem byggir á mjög skýru regluverki um þá þjónustu sem VIRK hefur verið stofnuð til þess að veita. Meginmarkmiðið með starfsendurhæfingu VIRK hefur verið að reyna að aðstoða fólk við að koma því aftur til virkni og út á vinnumarkaðinn. Í mörgum tilvikum hafa einstaklingar hins vegar verið að glíma við allt annars konar erfiðleika heldur en þá sem væri hægt að vinna með tilliti til þess að aðstoða þá til virkni út á vinnumarkaðinn. En góðu fréttirnar hins vegar eru þær að samkvæmt mínum nýjustu upplýsingum þá er verið að koma með úrræði fyrir þessa einstaklinga. Hins vegar mun ég skoða betur það sem hv. þingmaður er að nefna hér. Ef þessir einstaklingar eru að lenda á milli skips og bryggju og verða teknir af sinni framfærslu þá lít ég það grafalvarlegum augum og tel að þar geti ég verulega stigið inn í og skoðað það því að Tryggingastofnun sannarlega og sá veruleiki heyrir undir mig og mitt ráðuneyti.



[15:23]
Ingibjörg Isaksen (F):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir. Það er hins vegar þannig að endurhæfing, hvort sem það er starfsendurhæfing eða í þessu tilfelli geðendurhæfing, á klárlega heima í ráðuneyti hæstv. ráðherra. Það að samningnum hafi verið sagt upp í tíð fyrrverandi heilbrigðisráðherra hefur ekkert með málið að gera. Samningurinn er ekki runninn út, hann rennur ekki út fyrr en 1. júní næstkomandi. Það er á hendi og ábyrgð núverandi ráðherra að taka ákvörðun um framhaldið, ekki þeirra sem farnir eru frá borðinu. Það blasir við að ábyrgðin liggur þar.

Ráðherra fullyrti hér í pontu Alþingis að enginn verði án viðeigandi þjónustu en það er einfaldlega ekki rétt. Það liggur ekkert sambærilegt úrræði fyrir. Fagfólk liggur ekki á lausu og mörg úrræði eru full. Ríkisstjórnin lýsti því yfir að geðheilbrigðismál yrðu sett í forgang og fyrsta verkið á þeirri braut hjá hæstv. ríkisstjórn er að leggja niður úrræði sem hefur sýnt árangur og bjargað mannslífum. Ég vil spyrja hæstv. ráðherra hvort hún telji það forsvaranlegt að starfsendurhæfingarsjóður, sem hefur ekki sérþekkingu á geðrænum vanda, (Forseti hringir.) stýri því hvernig geðendurhæfingu er sinnt á Íslandi fyrir viðkvæmasta hóp ungmenna, án nokkurs faglegs stuðnings frá heilbrigðisyfirvöldum.



[15:24]
félags- og húsnæðismálaráðherra (Inga Sæland) (Flf):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvar. Fyrsta verk okkar — nei, ég ætla ekki að taka undir að það hafi verið fyrsta verk okkar að fá allt í skrúfuna varðandi þennan viðkvæma málaflokk, langt í frá. Við tókum við verkefninu þar sem það er statt núna nema við erum að reyna að leita lausna. Eins og ég bendi á þá standa bara öll ljós í þá átt og allt bros í þá átt að við munum koma til móts við þessa einstaklinga og taka utan um þá eftir þeirra eigin þörfum en hvort það verður á þessum eina og sama stað er hins vegar önnur saga, hv. þingmaður. Við skorumst ekki undan því að gera okkar besta og nú er verið að leita lausna í heilbrigðisráðuneytinu en ég ítreka það að ég og félags- og húsnæðismálaráðuneytið höfum í rauninni aldrei komið að þessari samningsgerð við þessa endurhæfingaraðila eða skrifað undir neitt í þá átt. Alveg sama hversu oft hv. þingmaður kinkar kolli þá getur hún ekki töfrað það inn í mitt ráðuneyti.