156. löggjafarþing — 33. fundur,  30. apr. 2025.

lokun Janusar endurhæfingar og úrræði fyrir ungmenni með fjölþættan vanda.

[15:19]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Virðulegi forseti. Nú eru um 30 dagar þar til Janusi endurhæfingu verður lokað, úrræði sem hefur veitt sérhæfða, samþætta og árangursríka geðendurhæfingu fyrir ungt fólk með fjölþættan vanda. Yfirfærslan sem átti að vera hafin um páska má segja að sé varla hafin yfir höfuð. Einstaklingum hefur jú verið boðið viðtal en vita ekki enn hvað tekur við og fá misvísandi og óljósar upplýsingar. Þetta er hópur sem þolir hvorki óvissu né breytingar. Nú bætist við að fjölmörgum hefur verið neitað um endurhæfingarlífeyri frá TR vegna þess að engin viðurkennd áframhaldandi þjónusta liggur fyrir. Við erum að tala um einstaklinga sem eru að fá synjun um endurhæfingarlífeyri ekki af því að þeir hætta sjálfir í úrræði heldur af því að stjórnvöld eru að loka úrræði án þess að annað sambærilegt sé tilbúið. Því bætist nú við fjárhagsóvissa ofan á allt saman. Stjórn Janusar endurhæfingar hefur nú óskað eftir formlegum samningaviðræðum við viðkomandi ráðuneyti þar sem boðið er til samtals með tillögu um lausn. Þar er bent á að tíminn sé naumur og að brýnt sé að tryggja samfellu og áframhaldandi þjónustu við ungmenni með flókinn geðrænan og félagslegan vanda. Nú liggur ábyrgð á endurhæfingu hjá ráðherra. Því spyr ég: Er hæstv. ráðherra reiðubúinn að kalla til fundar með Janusi og viðkomandi ráðherrum í þessari viku til að tryggja áframhaldandi þjónustu fyrir þennan hóp og koma í veg fyrir þjónusturof?