Herra forseti. Gagnaver er efni fyrirspurnar minnar til hæstv. ráðherra. Það er svolítið fróðlegt að fylgjast með þróuninni sem er að verða á gagnaverum og rekstri þeirra. Það eru ekki allir vissir og ég var ekki endilega alveg viss um hvað gagnaver nákvæmlega þýddi. Þegar maður fer að kynna sér þetta betur, og ég var búin að gefa mér ákveðnar forsendur, getur þetta verið mjög fjölbreytt flóra. Við sjáum að gagnaverin eru í ríkari mæli að verða hluti af grænum iðnaði, verið er að forgangsraða víða erlendis orku sem er beint til gagnavera því þar er talið að þau séu heppilegri en margur annar iðnaður.
Þar sem gagnaverin hafa verið byggð markvisst upp, þar sem ríkir ákveðin stefna, eins og t.d. í Svíþjóð, hefur safnast saman mikill fjöldi tækni- og rannsóknarfyrirtækja. Þar sér maður tækifæri, m.a. fyrir okkur Íslendinga, að standa sterkari í samkeppni við umheiminn, bæði við að fá erlent fjármagn inn í landið, erlend fyrirtæki, en ekki síður að fá fólkið okkar heim sem hefur menntað sig úti. Því að við þurfum fjölbreytt atvinnutækifæri fyrir fólkið okkar.
Í Svíþjóð hefur tækifærið verið nýtt við uppbyggingu gagnavera. Það hefur verið hlúð mjög markvisst að þeim, eins og ég gat um áðan. Þar er ákveðin stefna. Og m.a. birtist sú stefna í ákveðnum skattkerfisbreytingum sem voru gerðar, ívilnanir og síðan gott stuðningsnet við gagnaverin. Á Íslandi segja sérfræðingar, og við sáum það síðast í gær á Korputorgi, að mjög ákjósanlegar aðstæður séu fyrir rekstur gagnavera á Íslandi. Við höfum alla burði til að vera mjög leiðandi þjóð á þessu sviði. Þá skiptir máli hvort stjórnvöld hafi mótað sér stefnu og hafi ákveðna sýn á uppbyggingu gagnavera.
Fram hefur komið, kom m.a. fram um daginn í Morgunblaðinu að mig minnir, að ákveðnar áhyggjur voru í þá veru að við værum að setja öll eggin, þ.e. öll gagnaverin, í mjög svipaða körfu sem er karfa Bitcoin. Er það er bóla, eða ekki? Ég veit það ekki. Hv. þm. Smári McCarthy væri kannski betri til að fara yfir það. En ég er með þessu að reyna að forvitnast um hvaða stefna ríkir um uppbyggingu gagnavera, hvernig gagnaver við eigum að byggja upp og síðan hvort ráðherra muni beita sér fyrir skattaívilnunum. Telur hæstv. ráðherra skattaívilnanir mikilvægar við frekari uppbyggingu þeirra? Við sjáum skattaívilnanir sem eru á borði hæstv. ráðherra sem skila sér í ótrúlega miklum mæli til landsins í gegnum uppbyggingu kvikmyndaiðnaðarins og -menningarinnar. Við sjáum að skattaívilnanir geta skilað sér í mjög fjölbreyttum störfum til fólksins í landinu. (Forseti hringir.)
Þá vil ég gjarnan heyra hvort hæstv. ráðherra deili með mér því viðhorfi að það sé allt Ísland, ekki bara tilteknir landshlutar, sem eru í samkeppni við umheiminn og að þær ívilnanir gildi þá um landið allt, því að við viljum fá (Forseti hringir.) stórfyrirtækin hingað til að fjárfesta í grænni orku sem er á Íslandi í gegnum uppbyggingu gagnavera.
Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni fyrirspurnina sem er í senn áhugaverð og gagnleg og þessi umræða hefur verið gagnleg.
Við skipuðum starfshóp á síðasta ári, í ágúst í fyrra, um starfsumhverfi gagnavera. Hlutverk hópsins var að fara yfir þróun og stöðu gagnaveraiðnaðarins. Við vorum að reyna að taka stöðuna eins og hún er í dag og meta leiðir sem stjórnvöld geta farið til að efla stöðu iðnaðarins og framtíðarvöxt hans, m.a. í ljósi örra tækniframfara og þeirra þjóðfélagsbreytinga sem við vissulega göngum nú í gegnum.
Starfshópurinn hefur lokið störfum. Ég hef fengið kynningu á skýrslu og mun fara, væntanlega á föstudaginn, með hana og minnisblað til ríkisstjórnar og í kjölfarið birta hana á vef ráðuneytisins. Þá erum við komin með gott efni til að tala út frá og ákveðinn grunn til að vinna með.
Staðan í dag er sú að Ísland hentar að mörgu leyti vel fyrir gagnaver. Þetta er það sem við vitum og höfum heyrt frá fyrirtækjunum og þessu umhverfi. Samkeppnisstaðan byggist fyrst og fremst á grænni endurnýjanlegri orku sem hægt er að fá á nokkuð hagstæðu verði, þrátt fyrir að menn hafi ólíka skoðun á því. En þetta virðist vera staðan. Veðurfarslegi þátturinn hér stuðlar auðvitað að lægri kælikostnaði tölvubúnaðar en ella. Rokið gagnast nú stundum. Sú sérstaða fer þó minnkandi vegna sveigjanleika á raforkumarkaði í nágrannalöndunum sem byggist á samtengingu raforkukerfa þeirra og annarra kostnaðaráhrifaþátta sem fást þar á betri kjörum. Þetta eru fyrst og fremst þættir eins og fjöldi gagnatenginga og rekstraraðila, verð á bandvídd, flutningstafir og gegnsær raforkumarkaður.
Gildandi gjaldskrá fyrir flutning, dreifingu á raforku og kerfisþjónustu, er mögulega óhagstæð hagsmunum gagnavera. Við erum í dag með starfandi vinnuhóp um endurskoðun á ákvæðum raforkulaga að því er varðar stórnotendataxta. Það er ekkert sem ég get sagt til um núna, en ég segi bara að vinnuhópurinn er að skoða hvaða leiðir séu færar til að ná eðlilegri samfellu í gjaldskrám dreifiveitna og flutningsfyrirtækisins. Mögulega þarf að gera lagabreytingar sem eru þá forsendur nauðsynlegra gjaldskrárbreytinga. Þetta er í skoðun.
Við hljótum að vilja bjóða upp á raforku hér sem er a.m.k. samkeppnishæf kjörum sem bjóðast í nágrannalöndunum.
Eins og staðan er nú er tiltæk raforka takmörkuð. Þetta ræðum við í ýmsu samhengi. Nokkur óvissa ríkir um frekari orkuvinnslu sem gerir langtímaáætlun um uppbyggingu gagnavera erfiða. Þetta þrengir markaðssókn gagnvart nýjum gagnaveitum, bæði vegna óvissu um orkumagn sem er í boði og um afhendingartíma orkunnar.
Á grundvelli alls þessa sem ég hef farið yfir tel ég vissulega ástæðu til að skoða breytingar í umhverfi gagnavera með það að leiðarljósi að samkeppnishæfni gagnatenginga við útlönd verði aukin, t.d. með fjölgun tenginga og aukinni samkeppni. Þetta er lykilatriði og þetta heyrum við frá fyrirtækjunum sömuleiðis. Það getur m.a. verið gert með því að endurskoða gildandi gjaldskrá fyrir flutning, dreifingu á raforku og kerfisþjónustu. Íslensk stjórnvöld hafa heimild síðan í fjárlögum fyrir árið 2018 að selja hlut sinn í Farice. Ég er ekki að boða það hér en bendi á að heimildin er til staðar. Það er eitt af því sem við hljótum að skoða sérstaklega þegar við förum yfir þessa skýrslu. Þá þarf að fara yfir hvort sala á þeim hlut eða umskipting á fyrirtækinu myndi auka samkeppni á markaðnum. Vegna þess að það er mjög ríkjandi að fyrirtækin telja það vera ákveðið lykilatriði að aukin samkeppni verði á þessum markaði.
Það er alls ekki sjálfgefið að stjórnvöld myndu taka þátt í lagningu nýs fjarskiptastrengs en nýr ríkisstyrktur sæstrengur kemur ekki til greina nema með tilkomu hans fylgi nýir viðskiptavinir. Óbreytt ástand myndi ekki stækka heimamarkaðinn og tekjur af honum. Þess vegna er nauðsynlegt að fyrir liggi trygg skuldbinding um kaup bandbreiddar frá nýjum viðskiptavinum áður en endanleg ákvörðun um lagningu nýs sæstrengs yrði tekin.
Varðandi veitingu ívilnana erum við með í formi skattafsláttar tímabundnar ívilnanir sem unnt er að veita til að efla nýfjárfestingar í atvinnurekstri og samkeppnishæfni landsins og styrkja byggðaþróun. En lögin í dag eru með þeim hætti að þessi punktur um byggðaþróun er forsenda fyrir ívilnun. Ég er ekki með á mínu borði til skoðunar að breyta því og veit ekki hvernig það væri þá í samtali við ESA. En þessi byggðaþróunarvinkill er í lögunum og ég er ekki með það á borðinu að fara í sérstaka skoðun á því.
Ég er almennt þeirrar skoðunar að umhverfið eigi að vera hagkvæmt og fýsilegt fyrir þessa atvinnuuppbyggingu og mér hefur þótt áhugavert að heyra þessa helstu þætti sem fyrirtækin nefna, að það sé samkeppni á markaðnum og að þau komist í orkuna. (Forseti hringir.) En að lokum þakka ég fyrirspurnina og svara frekar í næsta svari ef þess er þörf?
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur fyrir að taka þetta mikilvæga mál upp og hæstv. iðnaðar- og nýsköpunarráðherra fyrir hennar svör. Ég hlakka til að komast yfir þessa skýrslu. Við erum auðvitað að horfa hér blákalt inn í framtíðina með þennan möguleika og mikilvægt að huga að þessum málum. Þetta snýr að orkustefnu, þetta snýr að fjarskiptum, þetta snýr að lagaumhverfinu og eins og hv. þingmaður kom inn á og hæstv. ráðherra þá snýr þetta að skattumhverfinu.
Hv. efnahags- og viðskiptanefnd beitti sér fyrir lagabreytingum árið 2016 sem snúa að því sem kallað er föst starfsstöð til að liðka til fyrir komu gagnavera og efla starfsemi þeirra hér á landi. Ég vil fyrst og fremst taka undir það sem komið hefur fram í umræðunni um mikilvægi þess að skoða þessi mál og hlakka til skoða skýrsluna.
Herra forseti. Þetta er alveg ótrúlega skemmtilegt, að hlusta á ráðherra fara yfir hvað er í gangi. Mér finnst við einhvern veginn vera að teygja út höndina og segja: Við erum aðeins að fá að snerta á framtíðinni. Þá skiptir svo miklu máli að við höfum í fyrsta lagi ákveðna sýn. Ég fagna sérstaklega sýn hæstv. ráðherra varðandi samkeppni. Samkeppnin, hvað sem hver segir, laðar fram ótrúlega margt og mikið; frumkvæðiskraft einstaklinga, sköpunargáfu og kraft innan fyrirtækja o.s.frv. Það væri kannski ekki úr vegi að hæstv. ráðherra færi bara upp á 6. hæð og notaði þessa ræðu um samkeppnismál í landbúnaði líka. Það er önnur saga.
Ég vil hvetja hæstv. ráðherra, því hún ræðir um orkustefnu og ætlar örugglega að koma inn á hana á eftir, til þess að hafa þverpólitískt samstarf af því að við erum að snerta framtíðina. Við þurfum að hugsa þetta lengra en bara kjörtímabilið, hugsa hvað við þurfum að ná pólitískri samstöðu um. Flokka- og pólitíska flóran er náttúrlega allt öðruvísi í dag en hún var hér á árum áður, þó að hæstv. ráðherra vilji, á meðan ég man, fækka flokkum, sem er náttúrlega umhugsunarefni sem við þurfum að taka umræðu um síðar.
Þetta er veruleikinn í dag. Þá skiptir svo miklu máli að hafa trú á samtalinu í svona ótrúlega mikilvægum framtíðarmálum sem tengjast auðlindum þjóðarinnar og að við náum öllum að borðinu. Ég vil því hvetja hæstv. ráðherra sem ég treysti mjög vel til dáða í þeim efnum.
Það er líka merkilegt að heyra að hæstv. ráðherra hefur fengið núna skilin á skýrslunni. Ég vil beina því til hennar að birta hana strax sem mér heyrðist hún ætla að gera og ég fagna því, því að hún er eitthvað sem m.a. atvinnuveganefnd þyrfti að taka til umfjöllunar og fá ráðherra á sinn fund til að ræða hvernig best sé að gera þetta.
Ég vil hvetja hæstv. ráðherra í allri þeirri endurskoðunarvinnu, af því að hún nefndi stórnotendataxta, til þess að þar verði byggt upp gagnsæi í upplýsingum og miðlun upplýsinga. Það hefur ríkt allt of mikil tortryggni (Forseti hringir.) í garð gjaldskrár til ákveðinna stórnotenda. Þar eins og í öðru verðum við svolítið að læra af reynslunni. (Forseti hringir.) Ég hvet hana til þess að hafa sem mest gagnsæi þannig að almenningur fari með í þá leið okkar að vilja hafa fjölbreytta flóru (Forseti hringir.) fyrirtækja, stórnotendur sem aðra. Áfram veginn.
Herra forseti. Ég þakka fyrir þessa umræðu og langaði að bæta við um stefnuna og það sem hv. þm. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir kom inn á um hana, ég er sammála því að hana vantar. Stefna skiptir meira máli en kannski ýmsir vilja vera láta. Ég held að það muni alltaf hafa áhrif á það hvernig atvinnulífið þróast. Auðvitað er það þannig að gagnaverin velja sjálf sína viðskiptavini þrátt fyrir að við myndum eðli máls samkvæmt vilja sjá meira af hátæknistörfum þar sem eru aukin verðmæti, það blasir við.
Samtök gagnavera eru líka að vinna ákveðna vinnu. Ég mun fá þau á minn fund þegar henni er lokið. Þá hef ég áhuga á því að horfa á þetta og lesa þetta saman, annars vegar þessa skýrslu sem ég reikna með að birta um leið og ég hef farið með hana inn í ríkisstjórn á föstudaginn og svo vinnu þeirra og að hvaða leyti þetta fer saman og skarast þannig að við getum sameiginlega komið þessu í gagnlegan farveg.
Ég fagna áhuga annarra þingmanna annarra flokka á málinu. Þetta er auðvitað mikil framtíðarmúsík á sama tíma og þetta er að gerast núna. Við vitum að þetta er mjög ört vaxandi iðnaður, ef ekki sá iðnaður sem er í hvað örustum vexti í heimi, þannig að sjálfsögðu viljum við taka okkar pláss þar.
Varðandi fjölda flokkanna þá vil ég ekkert endilega fækka þeim, en ég er samt þeirrar skoðunar að þeir þyrftu ekki endilega að vera svo margir. En það er eitthvað sem er bæði önnur umræða og lengri tíma mál.