149. löggjafarþing — 87. fundur.
efnahagsleg áhrif af gjaldþroti WOW air.

[15:09]
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Herra forseti. Ríkisstjórnin gaf út fyrir helgi að hún myndi aðstoða strandaglópa við að komast til sín heima og það er fínt út af fyrir sig. Að öðru leyti hefur ríkisstjórnin ekkert gefið út um frekari aðgerðir til langs tíma sem viðbrögð við gjaldþroti WOW air. Þetta er þrátt fyrir það að spár geri ráð fyrir að um 3.000 manns gætu misst vinnuna sem mun að einhverju leyti skila sér í auknu atvinnuleysi. Í febrúar sl. voru um 5.900 manns á atvinnuleysisskrá og þeim gæti því fjölgað um allt að helming. Slíkt högg mun vera vont fyrir Ísland en þó er hverju mannsbarni bersýnilegt að höggið á Suðurnesjum verður langverst.

Það er vonandi að önnur flugfélög geti afgreitt ferðamenn sem hefðu annars farið með WOW en flugrekstur er oftast skipulagður að minnsta kosti eitt ár fram í tímann og þeir sem hafa kynnt sér þessi mál vita að það er ekki hægt að hlaupa til í flugrekstri og því mun gjaldþrot sem þetta hafa gríðarleg áhrif á áhrifasvæði eina alþjóðaflugvallar landsins, á Suðurnesin, að minnsta kosti næsta árið.

Atvinnulausir á skrá á Suðurnesjum voru 770 í febrúar, langflestir verkafólk og fólk í þjónustustörfum. Það má búast við því að þessi tala muni því sem næst tvöfaldast á næstu dögum. Ætlar ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur virkilega að láta sitt eina svar við þessu vera að bæta við fólki til að taka við atvinnuleysisumsóknum og vona að markaðurinn leiðrétti þetta með tíð og tíma? Í ljósi þess að rekstrarerfiðleikar WOW air voru öllum ljósir síðasta haust er virkilega ekkert plan umfram það að aðstoða fólk við að komast til síns heima?

Að lokum: Er hæstv. forsætisráðherra sammála hæstv. fjármálaráðherra sem lýsti því yfir í Kastljósi fyrir helgi, með leyfi forseta, að það sé engin önnur leið en að láta framboð og eftirspurn ráða þessum hlutum?



[15:11]
forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég velti því fyrir mér hvort hv. þingmaður hafi misst af umræðum um fjármálaáætlun sem stóð hér í síðustu viku. Fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar snýst m.a. um það að bregðast við breyttum horfum í efnahagslífinu. Hún snýst um að taka á því að það er að hægjast um í hagkerfinu. Það er m.a. þess vegna sem við leggjum til aukna opinbera fjárfestingu. Það er til þess að hið opinbera beiti sér til að vega upp á móti slaka í hagkerfinu og tryggja atvinnustig. Það er m.a. þess vegna sem er fyrirhuguð uppbygging á Keflavíkurflugvelli, af því að hv. þingmaður vill ræða sérstaklega Suðurnes, og það eru fleiri opinberar framkvæmdir fyrirhugaðar á Suðurnesjum sem munu sannarlega þjóna þeim tilgangi að tryggja atvinnustig.

Það er nefnilega heila málið. Hagkerfið er mjög vel í stakk búið til að takast á við áskoranir á borð við þessa. Það virkar ekki þannig, svo ég segi það við hv. þingmann og allan þingheim, að hið opinbera dragi ný flugfélög upp úr skúffunni þegar eitt flugfélag fer á hausinn. Það er ekki svo. Hið opinbera bregst við með því að haga sinni hagstjórn þannig að eiga afgang þegar fyrir liggur að fer að kólna í hagkerfinu, til að geta beitt sínum tækjum og tólum til þess að tryggja atvinnustig, til að standa undir velferðinni í landinu og beina fjárfestingum þangað sem vænlegt er að byggja upp.

Ég vil minna hv. þingmann á að það er ekki tilviljun að við erum að fara að fjárfesta með auknum hætti í rannsóknum, þróun og nýsköpun. Það er ekki bara af því að okkur langar til að gera það. Það er hluti af efnahags- og atvinnustefnu ríkisstjórnarinnar að fjölga stoðunum undir íslensku efnahagslífi. Það er eitt af því sem við getum svo sannarlega lært af hagsögu Íslands. Ísland er auðlindadrifið hagkerfi. Það skiptir máli að fjölga stoðunum og það skiptir máli að byggja ekki bara á náttúruauðlindum heldur á hugviti. Þess vegna ætlum við að fjárfesta í þessu.

Hvað varðar Suðurnesin sérstaklega og skammtímaviðbrögð átti ég mjög góðan fund með sveitarstjórnarmönnum á Suðurnesjum í morgun þar sem var farið yfir skammtímaviðbrögðin. Þar eru allir ráðherrar á tánum, félags- og barnamálaráðherra, mennta- og menningarmálaráðherra og heilbrigðisráðherra hafa öll þegar gripið til sérstakra ráðstafana vegna stöðunnar á Suðurnesjum.



[15:14]
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Herra forseti. Nei, ég missti svo sannarlega ekki af umræðu um fjármálaáætlun hér um daginn. Hins vegar spyr ég að þessu vegna þess að ríkisstjórnin lagði sig fram um að tala um að hún hefði verið viðbúin þessari stöðu alveg frá því í fyrrahaust og þess vegna kom það mér á óvart að heyra hæstv. samgönguráðherra tala um að það ætti að leggjast yfir stöðuna og greina hana og athuga hvað ætti að gera. Þess vegna kom mér á óvart að það væru ekki svör um t.d. hvað kæmi fyrir þá nemendur sem hafa verið að vinna í fullu starfi með sínu námi og eiga ekki rétt á atvinnuleysisbótum og eiga heldur ekki rétt á námslánum. Ég hefði viljað sjá svör við þessum spurningum.

Ég hefði líka viljað sjá einhvers konar svör um það hvað fór úrskeiðis þegar við vitum að aðalvandamálið hvað varðaði WOW air var gríðarleg skuldsetning. Fáum við einhver svör um það hvort eftirliti var ábótavant, hvort þetta sé eitthvað sem þurfi að skoða í framtíðinni og hver viðbrögðin verða við því? Hvað ætlum við að gera til að það komi ekki fyrir aftur að hægt sé að safna 24 milljörðum í skuldir og fljúga svo bara þráðbeint á hausinn öllum að óvörum — eða þannig eða kannski ekki eða ég veit það ekki? Ég skil ekki alveg viðbragðsáætlun sem fer ekki af stað fyrr en töluvert eftir að skaðinn er skeður.



[15:15]
forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Það er ekki svo að ekki hafi verið fylgst með. Samgöngustofa er sá aðili af hálfu stjórnvalda sem fylgdist með þessari stöðu og gerði það með mjög reglubundnum hætti alla síðustu mánuði.

Hv. þingmaður spyr um undirbúning. Ég vil minna á að í fyrra voru greiðslur úr Ábyrgðasjóði launa, hámark þeirra, hækkaðar og atvinnuleysisbætur. Hver var ástæða þess? Jú, sú að við sáum fyrir að von gæti verið á frekari áföllum vegna kólnunar í hagkerfinu. Þetta er mjög mikilvægt núna og ég lýsi yfir sérstakri ánægju með þá samstöðu sem verkalýðshreyfingin sýnir sínum félögum með því að leggja út fyrir launagreiðslum og gera í staðinn kröfu á Ábyrgðasjóð launa til að brúa bilið fyrir fólk um þessi mánaðamót.

Hins vegar hefur félagsmálaráðuneytið og ríkisstjórnin þegar samþykkt aukið fé til Vinnumálastofnunar til að standa að aukinni ráðgjöf. Menntamálaráðuneytið og ráðherrann hefur sett sig í samband við skóla á svæðinu og menntastofnanir til að geta brugðist við og sömuleiðis heilbrigðisráðuneytið því að það er líka mikilvægt að huga að velferð til skemmri tíma. Þar hafa öll ráðuneyti verið í viðbragðsstöðu.