efnahagsleg áhrif af gjaldþroti WOW air.
Herra forseti. Það er ekki svo að ekki hafi verið fylgst með. Samgöngustofa er sá aðili af hálfu stjórnvalda sem fylgdist með þessari stöðu og gerði það með mjög reglubundnum hætti alla síðustu mánuði.
Hv. þingmaður spyr um undirbúning. Ég vil minna á að í fyrra voru greiðslur úr Ábyrgðasjóði launa, hámark þeirra, hækkaðar og atvinnuleysisbætur. Hver var ástæða þess? Jú, sú að við sáum fyrir að von gæti verið á frekari áföllum vegna kólnunar í hagkerfinu. Þetta er mjög mikilvægt núna og ég lýsi yfir sérstakri ánægju með þá samstöðu sem verkalýðshreyfingin sýnir sínum félögum með því að leggja út fyrir launagreiðslum og gera í staðinn kröfu á Ábyrgðasjóð launa til að brúa bilið fyrir fólk um þessi mánaðamót.
Hins vegar hefur félagsmálaráðuneytið og ríkisstjórnin þegar samþykkt aukið fé til Vinnumálastofnunar til að standa að aukinni ráðgjöf. Menntamálaráðuneytið og ráðherrann hefur sett sig í samband við skóla á svæðinu og menntastofnanir til að geta brugðist við og sömuleiðis heilbrigðisráðuneytið því að það er líka mikilvægt að huga að velferð til skemmri tíma. Þar hafa öll ráðuneyti verið í viðbragðsstöðu.