efnahagsleg áhrif af gjaldþroti WOW air.
Herra forseti. Ríkisstjórnin gaf út fyrir helgi að hún myndi aðstoða strandaglópa við að komast til sín heima og það er fínt út af fyrir sig. Að öðru leyti hefur ríkisstjórnin ekkert gefið út um frekari aðgerðir til langs tíma sem viðbrögð við gjaldþroti WOW air. Þetta er þrátt fyrir það að spár geri ráð fyrir að um 3.000 manns gætu misst vinnuna sem mun að einhverju leyti skila sér í auknu atvinnuleysi. Í febrúar sl. voru um 5.900 manns á atvinnuleysisskrá og þeim gæti því fjölgað um allt að helming. Slíkt högg mun vera vont fyrir Ísland en þó er hverju mannsbarni bersýnilegt að höggið á Suðurnesjum verður langverst.
Það er vonandi að önnur flugfélög geti afgreitt ferðamenn sem hefðu annars farið með WOW en flugrekstur er oftast skipulagður að minnsta kosti eitt ár fram í tímann og þeir sem hafa kynnt sér þessi mál vita að það er ekki hægt að hlaupa til í flugrekstri og því mun gjaldþrot sem þetta hafa gríðarleg áhrif á áhrifasvæði eina alþjóðaflugvallar landsins, á Suðurnesin, að minnsta kosti næsta árið.
Atvinnulausir á skrá á Suðurnesjum voru 770 í febrúar, langflestir verkafólk og fólk í þjónustustörfum. Það má búast við því að þessi tala muni því sem næst tvöfaldast á næstu dögum. Ætlar ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur virkilega að láta sitt eina svar við þessu vera að bæta við fólki til að taka við atvinnuleysisumsóknum og vona að markaðurinn leiðrétti þetta með tíð og tíma? Í ljósi þess að rekstrarerfiðleikar WOW air voru öllum ljósir síðasta haust er virkilega ekkert plan umfram það að aðstoða fólk við að komast til síns heima?
Að lokum: Er hæstv. forsætisráðherra sammála hæstv. fjármálaráðherra sem lýsti því yfir í Kastljósi fyrir helgi, með leyfi forseta, að það sé engin önnur leið en að láta framboð og eftirspurn ráða þessum hlutum?