Spyrjandi var .
Virðulegur forseti. Margt áhugavert má lesa úr nýframkomnu fjárlagafrumvarpi og þar gefst einnig tækifæri til að kanna sannleiksgildi pólitískrar orðræðu frá síðasta ári. Hver man ekki eftir slagorðum ríkisstjórnarinnar eins og „ræsum vélarnar“ og stóryrtum yfirlýsingum um að nú verði aftur farið að bora göng? Ef við horfum til útgjalda ríkisins til samgangna á þessu kjörtímabili hlýtur sú spurning að vakna hvort það hafi ekki verið ætlunin að láta vélarnar ganga a.m.k. um einhverja hríð, eða eru þær strax orðnar olíulausar? Af hverju er raunlækkun til samgangna í fjárlagafrumvarpinu um 6,3% á sama tíma og ríkisstjórnin ákvað í síðustu fjárlögum að sækja 7,6 milljarða í hækkun á veiðigjaldi, 7,5 milljarða í hækkun á vörugjöldum af ökutækjum, 3,3 milljarða í hækkun á kílómetragjaldi og nú í fjárlagafrumvarpinu fyrir 2027 4 milljarða í hækkun á kílómetragjaldi auk ýmissa krónutölugjalda, allt saman rökstutt með því að nú ætti að gera gangskör í samgöngumálum? Hvernig útskýrir hæstv. innviðaráðherra að þrátt fyrir alla þessa auknu gjaldheimtu skuli raunlækkun til samgangna vera tæpir 3 milljarðar? Og hvernig rímar það við yfirlýsingar hæstv. ráðherra um verulega aukið fjármagn til samgangna?
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina sem mér þykir gott að geta svarað hér. Við erum að stórauka framlög til samgöngumála og vegamála frá fyrri ríkisstjórn. Varðandi það sem fyrri ríkisstjórn var að gera í vegamálum þá áætlaði hún í kringum 13 milljarða í viðhald. Við erum í ár að fara upp í 17,5 milljarða. Í fyrra settum við auka 3 milljarða. Næsta ár ætlum við að fara í 17,6 milljarða, við ætluðum að fara hærra en lendum í 17,6 vegna aðhalds.
Framkvæmdafé í samgönguáætlun. Fyrri ríkisstjórn ætlaði á fyrstu fimm árum þeirrar samgönguáætlunar sem dagaði uppi í þinginu árið 2023 eða 2024 að leggja fram 261 milljarð. Við erum núna að leggja fram 351 milljarð á fyrstu fimm árum samgönguáætlunar. Það er 90 milljörðum meira. Svona getum við haldið áfram. Vetrarþjónusta var rekin með viðvarandi halla hjá síðustu ríkisstjórn. Við erum núna að fara í meira en 14 milljarða. Við erum að bæta við tæpum 14 milljörðum meira á fyrsta tímabilinu en hjá síðustu ríkisstjórn. Jarðgöng, algjör kyrrstaða í jarðgangagerð, engin jarðgöng gerð frá 2022. Byrjað á jarðgöngum 2017. Við erum að fara að hefja framkvæmdir á næsta ári. Við erum líka að koma með nýtt innviðafélag sem mun líklega gjörbylta fjármögnun á innviðaframkvæmdum. Þetta er það sem við erum að gera. Þetta er breyting sem við erum að gera.
Varðandi fjárlagagerðina núna í ár er það markmið ríkisstjórnarinnar að ná niður verðbólgu í landinu og ná niður vaxtastigi. Út á það ganga núverandi fjárlög. Við erum samt að bæta í varðandi samgöngur.
Frú forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin en hann kemst auðvitað ekki fram hjá því að hann er engu að síður að draga úr fjárframlögum til samgangna þrátt fyrir verulega aukna gjaldheimtu.
Virðulegur forseti. Nú er innheimta af ökutækjum í fjárlagafrumvarpi næsta árs 89 milljarðar kr. eða um 1,6% af vergri landsframleiðslu, en fjárveitingar til vegaframkvæmda tæp 0,7% af vergri landsframleiðslu. Nú eru uppi háleit markmið með stofnun innviðafélags um að hraða uppbyggingu samgönguinnviða með aukinni gjaldtöku af ökutækjum. Það er tvennt sem ég vil nefna: Fyrst innviðafélagið er að fjármagna sig sjálft, af hverju erum við þá að hækka alla þessa skatta? Og hefur ráðherra engar áhyggjur af því að há skattlagning ökutækja muni draga úr stuðningi og greiðsluvilja bifreiðaeigenda ef það á endurtekið að svíkja loforð um að ráðstafa auknum hluta innheimtra gjalda til uppbyggingar samgöngukerfisins?
Virðulegur forseti. Tekjur af bifreiðum og samgöngum í ríkissjóð hafa verið á tímabilinu 2010–2017 1,7% af þjóðarframleiðslu, VLF. Við erum núna komin upp í 1,6%. Það hefur alltaf verið þannig að allir peningar sem koma af samgöngum eða bifreiðum renna ekki beint til samgöngumála. Þetta fer í hítina — afsakið, (Gripið fram í.) fer í ríkissjóð og þaðan er úthlutað fé á fjárlögum. Þannig er það. Varðandi innviðafélagið þá mun það fá eigið fé og það stendur í 5. gr. fjárlaga. Það verður núna farið í Fljótagöng á vegum innviðafélagsins, það verður boðið út á vegum innviðafélagsins og það mun sjá svo um þá framkvæmd. Við gerum líka ráð fyrir að Sundabraut fari þar inn síðar meir. Við ætlum að setja þar inn tekjuberandi eignir; Vaðlaheiðargöng, Hornafjarðarfljót og Ölfusárbrú þegar þar að kemur. Það eru því tekjuberandi eignir og eigið fé og svo verða líka veggjöld. Þetta verður eins konar tekjumódel hjá innviðafélaginu. (Forseti hringir.) Það breytir því ekki að tekjur af bifreiðum fara í ríkissjóð. Ég biðst afsökunar á að hafa notað orðið „hítina“, en það vissu allir hvað ég var að meina.