158. löggjafarþing — 5. fundur,  14. sept. 2026.

framlög til samgangna.

[13:43]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina sem mér þykir gott að geta svarað hér. Við erum að stórauka framlög til samgöngumála og vegamála frá fyrri ríkisstjórn. Varðandi það sem fyrri ríkisstjórn var að gera í vegamálum þá áætlaði hún í kringum 13 milljarða í viðhald. Við erum í ár að fara upp í 17,5 milljarða. Í fyrra settum við auka 3 milljarða. Næsta ár ætlum við að fara í 17,6 milljarða, við ætluðum að fara hærra en lendum í 17,6 vegna aðhalds.

Framkvæmdafé í samgönguáætlun. Fyrri ríkisstjórn ætlaði á fyrstu fimm árum þeirrar samgönguáætlunar sem dagaði uppi í þinginu árið 2023 eða 2024 að leggja fram 261 milljarð. Við erum núna að leggja fram 351 milljarð á fyrstu fimm árum samgönguáætlunar. Það er 90 milljörðum meira. Svona getum við haldið áfram. Vetrarþjónusta var rekin með viðvarandi halla hjá síðustu ríkisstjórn. Við erum núna að fara í meira en 14 milljarða. Við erum að bæta við tæpum 14 milljörðum meira á fyrsta tímabilinu en hjá síðustu ríkisstjórn. Jarðgöng, algjör kyrrstaða í jarðgangagerð, engin jarðgöng gerð frá 2022. Byrjað á jarðgöngum 2017. Við erum að fara að hefja framkvæmdir á næsta ári. Við erum líka að koma með nýtt innviðafélag sem mun líklega gjörbylta fjármögnun á innviðaframkvæmdum. Þetta er það sem við erum að gera. Þetta er breyting sem við erum að gera.

Varðandi fjárlagagerðina núna í ár er það markmið ríkisstjórnarinnar að ná niður verðbólgu í landinu og ná niður vaxtastigi. Út á það ganga núverandi fjárlög. Við erum samt að bæta í varðandi samgöngur.