Spyrjandi var .
Virðulegur forseti. Það væri nú kannski alveg tilefni til sérstakrar umræðu við hæstv. innviðaráðherra um hítina, en ég ætla að geyma hana til betri tíma. Mig langar hins vegar að spyrja hæstv. forsætisráðherra: Að hennar mati, mun boðuð 5,2% hækkun á krónutölugjöldum ásamt hækkun á kílómetragjaldi um 4 milljarða hafa áhrif til hækkunar eða lækkunar á vísitölu neysluverðs?
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Ég geri mér alveg grein fyrir því hvaða áhrif krónutölugjöld hafa í janúar, alveg eins og þau hafa haft á öllum árum í gegnum tíðina, alveg eins og þegar síðasta ríkisstjórn hækkaði krónutölugjöld um 7,7% árið 2023. Ef fólk ætlar að fara á þann stað með krónutölugjöldin í þessum sal að þetta sé allt í einu einhver nýr veruleiki, að hér sé tekin verðbólga síðasta árs og henni sé bætt við krónutölugjöld, þá erum við komin í einhverjar sögufalsanir. Í gegnum tíðina, vissulega, og það má gefa fólki það, hefur verið ráðist í sértækar ráðstafanir, sértækar aðgerðir, þegar hefur verið uppi ákveðin staða í samfélaginu. Það var gert til að mynda 2025 í kjölfar þess að skrifað var undir kjarasamninga, þá var vilyrði fyrir 2,5% hækkun. Ég hef sagt það opinberlega, og reyndar líka sagt það hér í þinginu, að þetta sé eitthvað sem við erum að ræða núna við vinnumarkaðinn, með hvaða hætti við getum komið til móts við hann. En það að halda því fram að það sé eitthvað nýtilkomið að krónutölugjöld fylgi verðlagi, finnst mér mjög sérstakt. Auðvitað hefur þetta eilítil jákvæð áhrif á verðbólguna en í umhverfi þar sem meðaltalsverðbólga frá aldamótum hefur verið 5% þá segir það sig sjálft að 0,2–0,3% hækkun á verðlagi í upphafi árs er ekki það sem er að gjörbreyta landslaginu þegar kemur að verðlagi. Það hefur verið undirliggjandi verðóstöðugleiki í langan tíma hér sem kemur til af mörgum ástæðum. Hann kemur til m.a. af því að við rekum hagkerfi þar sem við erum mjög innflutnings- og útflutningsfrek þannig að gjaldmiðill og gjaldeyrismarkaður hafa mikil áhrif. Við erum líka með vinnumarkað sem hefur, já, bara verið duglegur að sækja kaup og kjör fyrir fólkið í landinu. Síðan höfum við fyrst og fremst verið með verðtryggingu og verðvísitölu sem hafa gegnsýrt allt íslenskt samfélag og gert það að verkum að við sjáum höggin dynja oft í verðbólgunni. Við erum að taka á þessu. Ég geri mér fullkomlega grein fyrir því að þetta hefur áhrif á vísitölu neysluverðs en það er ekki nýtilkomið að ríkið sé rekið með þessum hætti (Forseti hringir.) og við erum að skoða sérstaklega þessar hækkanir í samtali við vinnumarkaðinn.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. forsætisráðherra kærlega fyrir svarið sem var áhugavert og já, það er gott að við erum sammála um það, enda kemur það fram í því frumvarpi sem við erum að fara að ræða hér á eftir að áhrifin eru metin á 0,28%, ef ég man töluna rétt, til hækkunar á vísitölunni. Mér finnst sérstakt, ég verð bara að segja það — og ég geri mér grein fyrir því að þetta er ekkert nýtt. Þetta hefur verið gert áður. Stundum hafa menn farið við sérstakar aðstæður og hækkað þetta um 2,5%, farið með þetta í verðbólgumarkmið Seðlabankans til að öðlast trúverðugleika og sýna traust og gott fordæmi. Það er því miður ekki gert núna en ég hefði alla vega farið þá leið.
Það sem mig langar að spyrja hæstv. forsætisráðherra um í mínu síðara andsvari er það hvort hún fyrir sitt leyti sé tilbúin að endurskoða þessa hækkun, t.d. til þess að mæta þeim gagnrýnisröddum sem hafa heyrst frá verkalýðsforystunni, (Forseti hringir.) sérstaklega þegar við erum nú með forsenduákvæði kjarasamninganna sem er brostið.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna og endurtek bara það sem ég sagði hér áðan, sem er að þetta væri einmitt til skoðunar í samtali við aðila vinnumarkaðarins. Þetta er raunar búið að vera til skoðunar frá því í sumar. Við erum í ákveðnu samtali. Það er verið að skoða heildrænt hvernig við getum tekið fleiri aðila að borðinu. Það er líka verið að ræða við sveitarfélögin. Það hefur verið eilítið flókið vegna þess að við vorum með sveitarstjórnarkosningar, það urðu breytingar í stjórn sambandsins og nýjar sveitarstjórnir eru að koma sér fyrir þannig að við höfum líka þurft að gefa þeim tíma til að breyta sinni mönnun, ef svo má segja. En þetta er, eins og ég sagði, til skoðunar. Við gerum okkur alveg grein fyrir því að þetta hefur áhrif að hluta. En það hefur líka áhrif — verð ég að segja af því að ég sé alveg hvernig þessi umræða er farin að þróast í þessum sal varðandi þessar gjaldahækkanir almennt — ef það er lögfest hér þjónusta sem er kostnaðarmetin og svo trekk í trekk, ár eftir ár, þá rýrnar hún að verðgildi (Forseti hringir.) og gerir það að verkum að við getum ekki staðið undir lögbundinni þjónustu sem við segjumst ætla að standa undir. (Forseti hringir.) Þannig að við skulum ekki gerast svo kreddukennd (Forseti hringir.) að fara allt í einu að taka fyrir allt sem ríkið hefur gert í þessum málum. (Forseti hringir.) En auðvitað geta verið sérstakar aðstæður sem kalla á inngrip.