afleiðingar krónutöluhækkunar gjalda á vísitölu neysluverðs.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Ég geri mér alveg grein fyrir því hvaða áhrif krónutölugjöld hafa í janúar, alveg eins og þau hafa haft á öllum árum í gegnum tíðina, alveg eins og þegar síðasta ríkisstjórn hækkaði krónutölugjöld um 7,7% árið 2023. Ef fólk ætlar að fara á þann stað með krónutölugjöldin í þessum sal að þetta sé allt í einu einhver nýr veruleiki, að hér sé tekin verðbólga síðasta árs og henni sé bætt við krónutölugjöld, þá erum við komin í einhverjar sögufalsanir. Í gegnum tíðina, vissulega, og það má gefa fólki það, hefur verið ráðist í sértækar ráðstafanir, sértækar aðgerðir, þegar hefur verið uppi ákveðin staða í samfélaginu. Það var gert til að mynda 2025 í kjölfar þess að skrifað var undir kjarasamninga, þá var vilyrði fyrir 2,5% hækkun. Ég hef sagt það opinberlega, og reyndar líka sagt það hér í þinginu, að þetta sé eitthvað sem við erum að ræða núna við vinnumarkaðinn, með hvaða hætti við getum komið til móts við hann. En það að halda því fram að það sé eitthvað nýtilkomið að krónutölugjöld fylgi verðlagi, finnst mér mjög sérstakt. Auðvitað hefur þetta eilítil jákvæð áhrif á verðbólguna en í umhverfi þar sem meðaltalsverðbólga frá aldamótum hefur verið 5% þá segir það sig sjálft að 0,2–0,3% hækkun á verðlagi í upphafi árs er ekki það sem er að gjörbreyta landslaginu þegar kemur að verðlagi. Það hefur verið undirliggjandi verðóstöðugleiki í langan tíma hér sem kemur til af mörgum ástæðum. Hann kemur til m.a. af því að við rekum hagkerfi þar sem við erum mjög innflutnings- og útflutningsfrek þannig að gjaldmiðill og gjaldeyrismarkaður hafa mikil áhrif. Við erum líka með vinnumarkað sem hefur, já, bara verið duglegur að sækja kaup og kjör fyrir fólkið í landinu. Síðan höfum við fyrst og fremst verið með verðtryggingu og verðvísitölu sem hafa gegnsýrt allt íslenskt samfélag og gert það að verkum að við sjáum höggin dynja oft í verðbólgunni. Við erum að taka á þessu. Ég geri mér fullkomlega grein fyrir því að þetta hefur áhrif á vísitölu neysluverðs en það er ekki nýtilkomið að ríkið sé rekið með þessum hætti (Forseti hringir.) og við erum að skoða sérstaklega þessar hækkanir í samtali við vinnumarkaðinn.