afleiðingar krónutöluhækkunar gjalda á vísitölu neysluverðs.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. forsætisráðherra kærlega fyrir svarið sem var áhugavert og já, það er gott að við erum sammála um það, enda kemur það fram í því frumvarpi sem við erum að fara að ræða hér á eftir að áhrifin eru metin á 0,28%, ef ég man töluna rétt, til hækkunar á vísitölunni. Mér finnst sérstakt, ég verð bara að segja það — og ég geri mér grein fyrir því að þetta er ekkert nýtt. Þetta hefur verið gert áður. Stundum hafa menn farið við sérstakar aðstæður og hækkað þetta um 2,5%, farið með þetta í verðbólgumarkmið Seðlabankans til að öðlast trúverðugleika og sýna traust og gott fordæmi. Það er því miður ekki gert núna en ég hefði alla vega farið þá leið.
Það sem mig langar að spyrja hæstv. forsætisráðherra um í mínu síðara andsvari er það hvort hún fyrir sitt leyti sé tilbúin að endurskoða þessa hækkun, t.d. til þess að mæta þeim gagnrýnisröddum sem hafa heyrst frá verkalýðsforystunni, (Forseti hringir.) sérstaklega þegar við erum nú með forsenduákvæði kjarasamninganna sem er brostið.