149. löggjafarþing — 119. fundur.
íslenska sem opinbert mál á Íslandi, frh. síðari umræðu.
stjtill., 443. mál. — Þskj. 631, nál. 1667, breytingartillaga 1668.

ATKVÆÐAGREIÐSLA

[15:16]

[15:15]
mennta- og menningarmálaráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ég fagna því að þingheimur sé svona jákvæður gagnvart þessari þingsályktunartillögu um að efla íslensku sem opinbert mál á Íslandi. Þetta er framfaramál, við þurfum að styrkja stoðirnar og það skiptir mestu máli að við notum íslenskuna og þetta sé opin og hlý nálgun á tungumálið okkar. Þetta er aðgerðaáætlun í 22 liðum og ég er sannfærð um að með henni munum við ná þessum markmiðum okkar, í fyrsta lagi að íslenskan verði notuð á öllum sviðum, íslenskan verði efld á öllum skólastigum og að framtíð íslenskrar tungu í stafrænum heimi verði tryggð.

Að lokum vil ég þakka allsherjar- og menntamálanefnd kærlega fyrir alveg ótrúlega mikla vinnu, sérstaklega formanni hennar, og öllum þeim gestum sem komu og gerðu góðar og gagnlegar athugasemdir við þessa þingsályktunartillögu.



Brtt. 1668,1–17 samþ. með 56 shlj. atkv.

Tillgr., svo breytt, samþ. með 56 shlj. atkv.

Fyrirsögn samþ. án atkvgr.

Till., svo breytt, samþ. með 55 shlj. atkv. og sögðu

  já:  AFE,  AIJ,  AKÁ,  ATG,  ÁÓÁ,  ÁslS,  ÁsmD,  ÁsF,  BÁ,  BirgÞ,  BjarnB,  BLG,  BHar,  BN,  GBr,  GÞÞ,  GIK,  GuðmT,  GBS,  HSK,  HallM,  HKF,  HarB,  HVH,  HHG,  IngS,  JÞÓ,  JSV,  KGH,  KJak,  KÓP,  KÞJ,  LA,  LRM,  LínS,  LE,  NTF,  ÓGunn,  ÓÍ,  ÓBK,  PállM,  RBB,  SDG,  SÁA,  SPJ,  SilG,  SMc,  SÞÁ,  VilÁ,  WÞÞ,  ÞorS,  ÞorstV,  ÞórP,  ÞórdG,  ÞSÆ.
8 þm. (BergÓ,  BjG,  JónG,  OH,  SIJ,  SJS,  SSv,  ÞKG) fjarstaddir.