Spyrjandi var .
Virðulegur forseti. Mig langaði að beina þeirri spurningu fyrst og fremst til hæstv. ráðherra hvort hún mæti hingað til þings núna í upphafi þingvetrar uppgefin, hvort hæstv. forsætisráðherra sé uppgefin. Ég var nefnilega á fundi í morgun sem haldinn var af Samtökum fyrirtækja í fjármálaþjónustu og var þar m.a. með hæstv. fjármálaráðherra. Þar hafa menn miklar áhyggjur af skattlagningu sem boðuð er. Þar á bænum hafa menn auðvitað sérstakar áhyggjur af bankaskattinum og umræður voru um það. Hæstv. fjármálaráðherra var með mér í pallborði þar og það lá svo illa á honum að ég treysti mér ekki til þess og fannst ekki á það reynandi að bera upp frekari spurningar á hann hér. Mér fannst hann nefnilega hafa svolítið gefist upp á verkefninu, þ.e. verkefninu við efnahagsstjórnina. 6 milljarða kr. viðbótarskatt á bankana réttlætir hann með aukningu ríkisútgjalda núna fyrir mörgum árum síðan í tíð annarrar ríkisstjórnar. Það er enn þá verið að afsaka útgjöldin og skattlagninguna með vísan til heimsfaraldursins eða jarðeldanna eða hvað það nú er. Hann sá ofsjónum yfir öllu því.
Það kom fram eitt áhugavert á þessum fundi, að 6 milljarða kr. viðbótarskattur á bankana gæti haft þá afleiðingu að draga úr útlánagetu þeirra um 50 milljarða. Það munar um minna þegar þarf að fjármagna húsnæðislán fjölskyldnanna. Þetta er bara eitt dæmi um þessar miklu skattahækkanir og útgjaldaaukningu sem boðaðar eru í fjárlagafrumvarpinu og bandorminum sem verður ræddur hérna í dag. Þess vegna langaði mig að spyrja hæstv. ráðherra: Hefur hún í raun gefist upp á verkefninu og telur hún það vænlegt til árangurs fyrir hagsæld Íslands að reyna að skattleggja Íslendinga inn í hagsældina? (Forseti hringir.) Telur hæstv. forsætisráðherra, sem er nú hagfræðimenntuð, að það sé vænlegt til árangurs?
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina og fyrir að velta fyrir sér hvernig ég er upplögð. Ég er reyndar örlítið syfjuð, enda vaknaði ég klukkan tvö í morgun. Ég var í sólarhringsferð í Lapplandi að hitta leiðtoga bandalagsríkja í Rovaniemi þar sem var verið að tala til að mynda um málefni á okkar slóðum. Það breytir því ekki að ég er bara frekar glöð. Ég er frekar glöð að hafa náð markmiði í þessum fjárlögum um að snúa við rekstri ríkissjóðs. Þetta er ekki auðvelt. Þetta er ekki gert með einni aðgerð. Hér hefur oft verið talað um slagorð; slagorðið að það eigi bara að skera niður, eins og það sé ekkert mál að taka við ríkinu eins og það er, eins og búið er að byggja það upp yfir mörg ár og áratugi og bara ætla að sneiða allt niður og taka 5% af landsframleiðsluhlutfallinu þarna inni. Ef við horfum bara á hvað við erum að gera þá eru þetta kannski um 80 milljarðar sem er verið að leita að þarna til að loka umræddu gati. Um 44 eða 45 milljarðar eru á útgjaldahliðinni. Útgjöld eru um 30% af landsframleiðslu. Þetta er það minnsta á þessum áratug. Það liggur alveg fyrir. Þetta hlutfall hefur ekki farið niður fyrir 30% í mörg, mörg ár. Það er ekkert hæft í því að það sé verið að láta útgjöld alveg í friði og það er með mestu útgjaldaráðstafanir sem við höfum séð í 10–15 ár. Vissulega er líka verið að sækja tekjur, enda hefur það verið vandamálið að það hefur gengið illa að loka gatinu, m.a. vegna þess að það hafa verið gerðir alls konar, hvað á ég að segja, samningar, það hafa verið aukningar í tilfærslukerfum í gegnum árin, hlutir sem við erum að hluta til að taka á en þú gerir ekki á einni nóttu, en það hefur ekki verið vilji til þess að mæta þessu líka með sanngjarnri skattheimtu, ef svo má segja. Ég á ekki erfitt með það að leggja auknar álögur, ef það er upplifun fólks, á bankana. Þegar bankaskatturinn var lækkaður á sínum tíma fyrir þessi fyrirtæki sem eru að skila um 100 milljarða hagnaði þá var það á þeim forsendum að þetta myndi skila sér í lægri gjöldum til neytenda. Síðasta ríkisstjórn gerði m.a. úttekt á þessu og komst að þeirri niðurstöðu að það hefði ekki verið raunin, (Forseti hringir.) þannig að hér er verið að stíga skref í átt að eilítilli hækkun en hún er ekki jafn mikil og hún var áður, m.a. á vakt síðustu ríkisstjórnar.
Virðulegur forseti. Á þessum fundi sem ég vitnaði til komu einmitt sérstaklega fram fullyrðingar forsvarsmanna bankanna, a.m.k. eins banka, um að þegar bankaskatturinn var lækkaður á sínum tíma hafi einmitt útlánavextir lækkað í þeim banka. Þetta þarf allt að skoða. En það vekur auðvitað athygli að í bandorminum sem við ræðum hér um á eftir er engin tilraun gerð til þess að meta áhrif þessa tiltekna skatts á ekki bara fjármálafyrirtæki heldur líka á viðskiptavini og fyrst og fremst eigendur bankanna. En hverjir eru það? Það er ekki verið að skattleggja bankana. Það er ekki verið að skattleggja eitthvert hús hérna úti í bæ. Það er verið að skattleggja eigendur bankanna og hverjir eru það? Það eru lífeyrissjóðir. Það eru lífeyrisþegar þessa lands. Þeir eiga allt að 30–40% af bönkunum. Það eru lífeyrissjóðirnir og ríkið sjálft sem á stærstan hluta sem einstakur eigandi og verður af arðgreiðslum. Hver verða áhrifin af þessum skatti sem og öllum öðrum sköttum? Er hæstv. ráðherra ekki sammála mér í því (Forseti hringir.) að það þýðir ekki að henda hér inn í þingið þessum áformum án þess að hafa gert mat á áhrifum þess? Eða eiga þingmenn að vinna þá vinnu fyrir hæstv. ríkisstjórn?
Frú forseti. Mér finnst alveg sjálfsagt að þetta sé rætt. Í því felst fjárlagavinnan, að svona hlutir séu teknir fyrir. Auðvitað er búið að leggja vinnu í þetta og skoða. Ég vitnaði m.a. hérna í greiningu sem var gerð í tíð síðustu ríkisstjórnar, sem ég hef enga ástæðu til að ætla að hafi verið röng, þar sem kemur fram að það hafi verið lækkanir á bankaskattinum og það hafi líka verið ákveðnar svona þjónustuhagræðingar sem hafi verið jákvæðar. Það er auðvitað bara gott að bankarnir séu að færa sig í auknum mæli yfir í tæknilausnir o.fl. en það hefur ekki skilað sér til neytenda. Þetta eru bara upplýsingar sem liggja fyrir. Auðvitað eru skiptar skoðanir um þetta. Auðvitað eru bankarnir ekki ánægðir með þessa skattlagningu. Kemur það mér á óvart að forsvarsmenn bankanna skuli mótmæla? Nei. Það breytir því ekki að við erum í þeirri stöðu að við erum í miklu útgjaldaaðhaldi. Við erum með minnsta hlutfall útgjalda á síðustu árum, 30%. Það er bara allt í lagi að fletta þessu upp þegar það er verið að tala um að þetta sé allt sótt í gegnum tekjur. Á móti kemur að við erum líka að borga rúma 160 milljarða í vexti á hverju einasta ári vegna þess að það var ekki vilji hér til að loka þessu gati. Það er gríðarleg ógn (Forseti hringir.) við velferð í landinu að halda þessu gangandi. Það þarf að loka gatinu og ég veit alveg að bankarnir geta vel brúað þetta án þess að varpa þessu yfir á neytendur.