bankaskattur og afleiðingar hans.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina og fyrir að velta fyrir sér hvernig ég er upplögð. Ég er reyndar örlítið syfjuð, enda vaknaði ég klukkan tvö í morgun. Ég var í sólarhringsferð í Lapplandi að hitta leiðtoga bandalagsríkja í Rovaniemi þar sem var verið að tala til að mynda um málefni á okkar slóðum. Það breytir því ekki að ég er bara frekar glöð. Ég er frekar glöð að hafa náð markmiði í þessum fjárlögum um að snúa við rekstri ríkissjóðs. Þetta er ekki auðvelt. Þetta er ekki gert með einni aðgerð. Hér hefur oft verið talað um slagorð; slagorðið að það eigi bara að skera niður, eins og það sé ekkert mál að taka við ríkinu eins og það er, eins og búið er að byggja það upp yfir mörg ár og áratugi og bara ætla að sneiða allt niður og taka 5% af landsframleiðsluhlutfallinu þarna inni. Ef við horfum bara á hvað við erum að gera þá eru þetta kannski um 80 milljarðar sem er verið að leita að þarna til að loka umræddu gati. Um 44 eða 45 milljarðar eru á útgjaldahliðinni. Útgjöld eru um 30% af landsframleiðslu. Þetta er það minnsta á þessum áratug. Það liggur alveg fyrir. Þetta hlutfall hefur ekki farið niður fyrir 30% í mörg, mörg ár. Það er ekkert hæft í því að það sé verið að láta útgjöld alveg í friði og það er með mestu útgjaldaráðstafanir sem við höfum séð í 10–15 ár. Vissulega er líka verið að sækja tekjur, enda hefur það verið vandamálið að það hefur gengið illa að loka gatinu, m.a. vegna þess að það hafa verið gerðir alls konar, hvað á ég að segja, samningar, það hafa verið aukningar í tilfærslukerfum í gegnum árin, hlutir sem við erum að hluta til að taka á en þú gerir ekki á einni nóttu, en það hefur ekki verið vilji til þess að mæta þessu líka með sanngjarnri skattheimtu, ef svo má segja. Ég á ekki erfitt með það að leggja auknar álögur, ef það er upplifun fólks, á bankana. Þegar bankaskatturinn var lækkaður á sínum tíma fyrir þessi fyrirtæki sem eru að skila um 100 milljarða hagnaði þá var það á þeim forsendum að þetta myndi skila sér í lægri gjöldum til neytenda. Síðasta ríkisstjórn gerði m.a. úttekt á þessu og komst að þeirri niðurstöðu að það hefði ekki verið raunin, (Forseti hringir.) þannig að hér er verið að stíga skref í átt að eilítilli hækkun en hún er ekki jafn mikil og hún var áður, m.a. á vakt síðustu ríkisstjórnar.