bankaskattur og afleiðingar hans.
Frú forseti. Mér finnst alveg sjálfsagt að þetta sé rætt. Í því felst fjárlagavinnan, að svona hlutir séu teknir fyrir. Auðvitað er búið að leggja vinnu í þetta og skoða. Ég vitnaði m.a. hérna í greiningu sem var gerð í tíð síðustu ríkisstjórnar, sem ég hef enga ástæðu til að ætla að hafi verið röng, þar sem kemur fram að það hafi verið lækkanir á bankaskattinum og það hafi líka verið ákveðnar svona þjónustuhagræðingar sem hafi verið jákvæðar. Það er auðvitað bara gott að bankarnir séu að færa sig í auknum mæli yfir í tæknilausnir o.fl. en það hefur ekki skilað sér til neytenda. Þetta eru bara upplýsingar sem liggja fyrir. Auðvitað eru skiptar skoðanir um þetta. Auðvitað eru bankarnir ekki ánægðir með þessa skattlagningu. Kemur það mér á óvart að forsvarsmenn bankanna skuli mótmæla? Nei. Það breytir því ekki að við erum í þeirri stöðu að við erum í miklu útgjaldaaðhaldi. Við erum með minnsta hlutfall útgjalda á síðustu árum, 30%. Það er bara allt í lagi að fletta þessu upp þegar það er verið að tala um að þetta sé allt sótt í gegnum tekjur. Á móti kemur að við erum líka að borga rúma 160 milljarða í vexti á hverju einasta ári vegna þess að það var ekki vilji hér til að loka þessu gati. Það er gríðarleg ógn (Forseti hringir.) við velferð í landinu að halda þessu gangandi. Það þarf að loka gatinu og ég veit alveg að bankarnir geta vel brúað þetta án þess að varpa þessu yfir á neytendur.