158. löggjafarþing — 5. fundur,  14. sept. 2026.

bankaskattur og afleiðingar hans.

[13:53]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Á þessum fundi sem ég vitnaði til komu einmitt sérstaklega fram fullyrðingar forsvarsmanna bankanna, a.m.k. eins banka, um að þegar bankaskatturinn var lækkaður á sínum tíma hafi einmitt útlánavextir lækkað í þeim banka. Þetta þarf allt að skoða. En það vekur auðvitað athygli að í bandorminum sem við ræðum hér um á eftir er engin tilraun gerð til þess að meta áhrif þessa tiltekna skatts á ekki bara fjármálafyrirtæki heldur líka á viðskiptavini og fyrst og fremst eigendur bankanna. En hverjir eru það? Það er ekki verið að skattleggja bankana. Það er ekki verið að skattleggja eitthvert hús hérna úti í bæ. Það er verið að skattleggja eigendur bankanna og hverjir eru það? Það eru lífeyrissjóðir. Það eru lífeyrisþegar þessa lands. Þeir eiga allt að 30–40% af bönkunum. Það eru lífeyrissjóðirnir og ríkið sjálft sem á stærstan hluta sem einstakur eigandi og verður af arðgreiðslum. Hver verða áhrifin af þessum skatti sem og öllum öðrum sköttum? Er hæstv. ráðherra ekki sammála mér í því (Forseti hringir.) að það þýðir ekki að henda hér inn í þingið þessum áformum án þess að hafa gert mat á áhrifum þess? Eða eiga þingmenn að vinna þá vinnu fyrir hæstv. ríkisstjórn?