157. löggjafarþing — 101. fundur.

Málshefjandi var .

sérstök umræða.

Geðheilbrigðismál.

[14:28]
Ingibjörg Isaksen (F):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. heilbrigðisráðherra fyrir að taka þátt í þessari sérstöku umræðu hér í dag. Ég ætla að beina máli mínu í þessum fjölbreytta málaflokki í dag að viðkvæmum hópi fólks í samfélaginu sem fellur á milli kerfa. Þetta á sérstaklega við um einhverft fólk og ungt fólk með fjölþættan vanda og einstaklinga sem þurfa samþætta geðheilbrigðisþjónustu og endurhæfingu en fá hann ekki. Fréttaskýringarþátturinn Kveikur á RÚV vakti marga til umhugsunar í mars síðastliðnum en þar birtist skýrt veruleiki einhverfra einstaklinga á Íslandi. Einhverft fólk mætir því miður lokuðum dyrum og skilningsleysi í kerfinu en talið er að um 8.000 einstaklingar á fullorðinsaldri í landinu séu einhverfir og glími við áskoranir í daglegu lífi. Í umfjöllun Kveiks kom fram að a.m.k. 200 einstaklingar með einhverfu á aldrinum 18–30 ára væru í ráðaleysi vegna skorts á þjónustu. Þar kom líka fram að foreldrar margra hefðu horfið af vinnumarkaði sökum álags, farið á örorkubætur og upplifað sjálfsvígshugsanir vegna úrræðaleysis. Vandinn byrjar heldur ekki þegar fólk er fullorðið. Opinberar tölur sýna að haustið 2025 biðu 717 börn eftir greiningu hjá Ráðgjafar- og greiningarstöð og um 2.500 börn hjá Geðheilsumiðstöð barna. Þar af biðu um 650 börn eftir mati vegna gruns um einhverfu og áætlaður biðtími var a.m.k. 34 mánuðir. Staðan er sú að biðlistar eru að lengjast.

Einstaklingar á einhverfurófi eru í mun meiri hættu en aðrir á að þróa með sér hamlandi geðræna erfiðleika og skýrslur sýna að um 70% einhverfra glíma jafnframt við geðraskanir. Hér er æpandi þörf á sérhæfingu, samfellu og fjölbreyttum úrræðum sem mæta fólki þar sem það er statt. Þetta á ekki síst við um ungt fólk sem hvorki er í námi, vinnu né annarri virkni, svokölluðum NEET-hóp, sem glímir við alvarlegan og fjölþættan vanda sem hamlar þátttöku í daglegu lífi, námi, starfi og samfélagi.

Á síðasta kjörtímabili var gerður þríhliða samningur milli Janusar endurhæfingar, heilbrigðisráðuneytisins og VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs. Tilgangurinn með samningnum var að grípa þennan hóp betur. Þar var veitt þverfagleg geðendurhæfing sem bar raunverulegan árangur. Í mínum huga skiptir heiti úrræðisins ekki máli heldur þjónustan sem þar var veitt. Þjónustan var byggð á gagnreyndum aðferðum, nýjustu þekkingu og einstaklingsmiðaðri nálgun. Með þessum þríhliða samningi var heilbrigðisráðuneytið í reynd að staðfesta að slík endurhæfing væri samþætt félags- og heilbrigðisþjónustu. Endurhæfing af þessu tagi snýst ekki aðeins um meðferð í þröngum skilningi heldur um daglega færni, félagslega þátttöku, virkni og stuðning við fólk við að ná betri tökum á eigin lífi. En þrátt fyrir yfirlýsingar stjórnvalda um að efla geðheilbrigðisþjónustu, sérstaklega við börn og ungmenni, þá var brugðið á það ráð að rifta þessum samningi á síðasta ári. Í kjölfarið staðfesti heilbrigðisráðherra hér á Alþingi að sambærileg þjónusta myndi standa hópnum til boða. Staðreyndin er því miður önnur.

Í skýrslu um málefni fullorðinna einhverfra kemur fram að sérhæfð geðheilbrigðisþjónusta aðlöguð að einhverfu sé lítil og geðheilsuteymi höfuðborgarsvæðisins meti það svo að um fjórðungur þeirra sem þjóna á sé á einhverfurófi en teymin telja sig þó ekki búa yfir nægri sérhæfingu til að veita þessum hópi árangursríka meðferð.

Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að standa hér og segja að þetta sé einfalt mál og við þessu sé einföld lausn. Verkaskipting milli þjónustustiga í geðheilbrigðiskerfinu er engan veginn nægilega skýr. Það eykur álag á heilsugæslu, skerðir samfellu í meðferð og veldur því að fólk veit ekki hvert það á að leita. Sumir lenda á biðlista. Sumir fá synjun, sumir fá enga þjónustu fyrr en vandinn er orðinn töluvert þyngri. Og sumir gefast einfaldlega upp. Þessi staða í geðheilbrigðiskerfinu er óboðleg.

Virðulegi forseti. Okkur skortir fjölbreytt úrræði, samþætta geðendurhæfingu sem sameinar heilbrigðisþjónustu, félagslegan stuðning, virkni og einstaklingsmiðaða nálgun. Þegar sérfræðingar og geðlæknir segja stöðu geðheilbrigðisþjónustu hér á landi vera skammarblett á kerfinu okkar þá ber okkur að hlusta. (Forseti hringir.)

Hæstv. ráðherra fékk fyrir umræðuna sendar áherslur frá mér en samhliða því vona ég að það sem komi fram í þessari umræðu sé hvað hæstv. heilbrigðisráðherra finnst persónulega um stöðu mála í geðheilbrigðismálum hér á landi.



[14:34]
heilbrigðisráðherra (Alma D. Möller) (Sf):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. 5. þm. Norðaust. fyrir að efna til umræðu um geðheilbrigðismál sem eru jú áherslumál ríkisstjórnar. Hvað varðar fullyrðingu þingmanns í spurningum sem lagt var upp með um misræmi milli yfirlýsinga og raunverulegrar þjónustu þá er ráðherra ekki sammála öllu því mati. Sumarið 2025 opnaði ný þjónustuleið innan Hringsjár, Víðsjá, sem hefur það að markmiði að veita ungmennum einstaklingsmiðaða heilbrigðisþjónustu og starfsendurhæfingu til að bæta líðan, auka virkni, efla starfsgetu og félagsfærni. Kröfulýsing um innihald og veitingu þjónustu er sú sama og var í samningum við Janus. Í Víðsjá starfar fjöldi starfsstétta í takt við þarfir og óskir notenda. Aðgengi að þjónustunni hefur ekki breyst og tilvísunarferlið það sama. Viðmið fyrir þátttöku er óbreytt; taugaþroskaröskun, einkum einhverfa, og/eða geðrænn vandi sem valdi skertri samfélagsþátttöku ásamt því að einstaklingurinn þarf að vera fær um að sinna endurhæfingu. Umfang samnings, þ.e. fjöldi plássa, er minna en áður var af þeirri einföldu ástæðu að fyrra úrræði var aldrei fullnýtt. Niðurstaða Virk og ráðuneytis er að sú þjónusta sem boðið er upp á hjá Víðsjá sé í engu lakari en þjónustan sem var.

Hvað varðar spurninguna um að einhverfir fái synjun inn í geðheilbrigðisþjónustu hjá geðheilsuteymum má sjá að svarið sem vitnað er til nær aftur til ársins 2020 en áður var þjónustan ekki talin nægilega sértæk fyrir þarfir einstaklinga með einhverfu. Frá því í byrjun árs í fyrra er einhverfa hins vegar ekki frávísunarástæða og unnið hefur verið að því að efla heilbrigðisþjónustu fyrir einhverft fólk. Ávallt er samt nauðsynlegt að meta hvort tiltekið úrræði henti og í sumum tilvikum getur verið betra að beina einstaklingi í annað úrræði.

Frú forseti. Hafið er samtal við ráðuneyti félagsmála um uppbyggingu á þekkingar- og þjónustusetri, svokölluðu einhverfusetri, og verið er að skipa undirbúningshóp. Skortur á viðeigandi úrræðum getur haft verulegar afleiðingar fyrir einhverfa einstaklinga, bæði fyrir þá sjálfa sem og aðstandendur, og hugsanlega leitt til versnandi heilsu, aukins álags og brottfalls úr námi eða af vinnumarkaði. Það er óumdeilt að nauðsynlegt er að bæta skipulag, samfellu og þjónustu fyrir þennan hóp og hindra að slíkt gerist og væri einhverfusetur mikilvægt í því samhengi. Til að styrkja geðheilbrigðisþjónustu við einhverfa þarf að efla þekkingu þjónustuveitenda á einhverfu sem og að styrkja geðheilbrigðisþjónustu almennt, bæði fyrir börn og fullorðna, og eru þar stigin stór skref í fjárlögum ársins. Geðheilsumiðstöð barna, BUGL og Ráðgjafar- og greiningarstöð voru styrkt sem og geðheilsuteymi taugaþroskaraskana. Lögð er áhersla á ráðgjöf og stuðning við foreldra barna með alvarlega einhverfu en slíkt getur dregið úr álagi og minnkað líkur á alvarlegum vanda síðar og þar með komið í veg fyrir meiri þörf fyrir umfangsmeiri þjónustu.

Áður var nefnt að geðheilsuteymin eru að efla þjónustu við fullorðna einstaklinga. Geðsvið, þar með göngudeild lyndisraskana á Landspítala, hefur lagt sig fram um að veita þessum hópi þjónustu til jafns við aðra. Almennt þarf að leggja áherslu á að geðþjónusta við einhverfa verði styrkt og einhverfumiðuð nálgun útfærð á öllum þjónustustigum. Þá þarf sérstaklega að þróa langtímaeftirfylgd. Loks geta einhverjir fengið þjónustu sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsmanna og -samtaka og kanna þarf sérstaklega hvort fjarheilbrigðisþjónusta geti átt hér við. Það er því fjöldi úrræða sem sinnir geðheilbrigðisþjónustu við einhverfa einstaklinga en engu að síður er ljóst að gera þarf betur hvað sérhæfingu varðar og að því er nú unnið. Þá er þörf á vegvísun um kerfið en það yrði eitt af hlutverkum einhverfuseturs.



[14:39]
Jens Garðar Helgason (S):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Ingibjörgu Isaksen fyrir að vekja máls á þessu mikilvæga máli. Hver voru loforð Viðreisnar í síðustu kosningum? Þau voru að setja í forgang að vinna niður biðlista barna, að tryggja ókeypis sálfræðiþjónustu fyrir börn og efla forvarnir og tryggja meðferðarúrræði, öryggi og velferð barna og ungmenna. Þetta voru loforðin. Hver er staðan, virðulegur forseti, í þessum málaflokki í dag? Tæplega 2.500 börn eru á biðlista hjá Geðheilsumiðstöð barna, 717 börns hjá Ráðgjafar- og greiningarstöð og það eru tæplega 5.000 börn á biðlista eftir að fá þjónustu talmeinafræðings, 5.000 börn. Stór hluti af þessum hópi eru einhverf börn og biðtíminn er 38 mánuðir, virðulegi forseti, 38 mánuðir. Og hvað hefur ríkisstjórnin gert í þessum málaflokki? Jú, með algeru sambandsleysi og samráðsleysi var Janus endurhæfing lögð af. Ekkert samtal, engin heimsókn frá ráðherra til Janusar endurhæfingar til að ræða þessi mál. Hvað hefur orðið um þau börn og ungmenni sem nutu þjónustu Janusar endurhæfingar? Þó nokkur hluti af þeim hefur fallið á milli kerfa og fær hvergi þjónustu í dag. Nýjasta afrek ríkisstjórnarinnar er að hætta að þjónusta Foreldrahús sem í 40 ár hefur sinnt þúsundum barna og ungmenna sem eru í fíknivanda og foreldrum þeirra — 40 ár. Og hvert er framlag ríkisins? Jú, það er um 30 millj. kr. á ári. Af hverju er þetta að gerast? Af því að ráðherrann svarar ekki. Algjört áhugaleysi á þessum málaflokki. Svarar ekki. Hvað verður um þjónustuna við þau börn sem njóta þjónustu Foreldrahúss í dag? Það er ekkert úrræði sem tekur við.

Virðulegur forseti. Ég þakka fyrir þessa umræðu og hún mætti vera oftar hér í þingsal. (Forseti hringir.) En ég held að það sé kominn tími á það, virðulegur forseti, að hv. þingmenn stjórnarflokkanna (Forseti hringir.) og ekki síst Viðreisnar hætti að tala um hvað þeir séu góðir og fari að einbeita sér að því að gera gott.

(Forseti (BHar): Forseti minnir hv. þingmenn á að ræðutíminn er tvær mínútur undir þessum dagskrárlið.)



[14:42]
Sandra Sigurðardóttir (V):

Virðulegur forseti. Mig langar að þakka hv. þm. Ingibjörgu Isaksen fyrir að hefja máls á þessu mikilvæga málefni og ég ætla líka að þakka hv. þm. Jens Garðari Helgasyni fyrir brýninguna hér rétt í þessu. Eitt stærsta vandamál geðheilbrigðiskerfisins á Íslandi er það mikla og djúpa vantraust sem vanfjármögnun og þjónustuskortur hefur alið af sér. Það er ekki furða að fólk hafi ekki trú á kerfi sem hefur brugðist jafn oft og raun ber vitni. Til að við getum byggt upp kerfið okkar verðum við að horfast í augu við stöðuna, vera hreinskilin og tala hátt og skýrt, ekki bara um það hvað við ætlum að gera heldur um það sem við erum að gera. Við drögum mikilvægan lærdóm af því að það dugar ekki aðeins að vilja gera betur. Viljayfirlýsingar eru eitt en raunverulegar aðgerðir eru annað. Það dugar nefnilega ekki að opna meðferðarheimili ef húsnæðið er ekki tilbúið og ekki hægt að veita þá þjónustu sem því er ætlað að veita.

Virðulegur forseti. Í nýrri fjármálaáætlun er lögð áhersla á eflingu heilsugæslunnar og þar verður einblínt sérstaklega á fjölbreytta geðheilbrigðisþjónustu. Fjárveitingar málefnasviðsins hækka um 6,6 milljarða á tímabili áætlunarinnar og þar af eru um 2,3 milljarðar vegna áherslumála ríkisstjórnarinnar, svo sem í geðheilbrigðismálum og til styrkingar heilbrigðisþjónustu utan sjúkrahúsa.

Forseti. Til að tryggja skilvirka og góða þjónustu verður lögð áhersla á aukið samstarf heilsugæslunnar við sjálfstætt starfandi fagaðila og fjölgun starfsstétta innan heilsugæslunnar. Markmiðið er að fólk með fjölþættan vanda hafi aðgang að þverfaglegri endurhæfingu í sínu nærumhverfi. Ég fagna þessum áætlunum ríkisstjórnarinnar og ég fagna einnig þeim aðgerðum sem ríkisstjórnin hefur þegar gripið til, svo sem opnun stuðningsheimilis fyrir börn með fjölþættan vanda og eflingu meðferðarúrræðis vegna áfengis- og vímuefnavanda, en rannsóknir hafa einmitt ítrekað sýnt fram á að einhverft fólk er umtalsvert líklegra til þess að þróa með sér áfengis- og vímuefnavanda en óeinhverfir jafningjar þeirra.



[14:44]
Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Ég þakka fyrir þessa umræðu sem er auðvitað um mjög víðtækt mál. Það er annars vegar geðheilbrigðismál og mér heyrist að umræða um einhverfa einstaklinga komi líka inn í það. Bæði einhverfir og þeir sem glíma við geðsjúkdóma eru mjög fjölbreyttur hópur og erfitt að ræða einhverja heildarlausn sem hentar öllum í þeim efnum. Þetta á auðvitað við um þá eins og alla aðra í okkar ágæta landi. En ætli það megi nú ekki samt segja að það sem þetta fólk eigi allt sammerkt með okkur hinum sem ekki glímum við geðrænan vanda eða taugaröskunarsjúkdóma er að menn vilja allir hafa einhvern tilgang í lífinu og hafa metnað til þess að þjóna, ef ekki samfélaginu öllu þá a.m.k. sínu nærumhverfi með þátttöku á vinnumarkaði í einu formi eða öðru. Það hefur í sjálfu sér margt breyst til batnaðar í þeim efnum. Það hefur orðið vitundarvakning hjá atvinnulífinu um að ábyrgðin hvíli auðvitað að miklu leyti á atvinnulífinu að taka þátt í því virkniúrræði sem nauðsynlegt er að til staðar sé fyrir fólk með skerta starfsgetu. Það hefur verið gripið til ýmissa virkniúrræða eins og ráðningarstyrkja til atvinnurekanda. Þetta á nú sérstaklega við um atvinnulausa en ég held að fatlaðir geti sótt í þetta líka og ég held að það væri ráð að hafa mikla eftirfylgni og skoða það rækilega hvernig þessi úrræði hafa í raun virkað fyrir fólk með einhverfu, einhverfa fullorðna, og þá sem glíma við geðsjúkdóma. Er þetta úrræði raunverulega að virka? Ef það er ekki að virka þá er full ástæða til að brýna bæði atvinnulíf og okkur hér í stjórnmálum og stjórnvöld til að taka þá málið til endurskoðunar (Forseti hringir.) og gera þetta úrræði þannig úr garði að það raunverulega gagnist þeim sem á þurfa að halda.



[14:47]
Lilja Rafney Magnúsdóttir (Flf):

[14:49]
Halla Hrund Logadóttir (F):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Ingibjörgu Isaksen fyrir að hefja máls á þessu mikilvæga viðfangsefni og þakka sömuleiðis hæstv. heilbrigðisráðherra fyrir að vera með okkur hér í dag. Þetta er viðamikið mál en mig langar að beina sjónum að mikilvægi geðheilbrigðisþjónustu, sálfræðiþjónustu og stuðnings við foreldra og fjölskyldur barna sem eru að glíma við vímuefnavanda. Ég hef verið í samskiptum við fjölda foreldra sem eru að takast á við það stóra verkefni að styðja barnið sitt í gegnum slíkan vanda og eitt af þeim úrræðum sem margir hafa nefnt er Foreldrahús sem hv. þm. Jens Garðar Helgason nefndi. Það var stofnað 1966. Þetta er úrræði sem hefur virkað í áratugi. Mig minnir að það séu um 10.000 félagsmenn. Sérstaða Foreldrahúss er einmitt að styðja ekki bara við börnin heldur líka við foreldra með þeirri trú að til þess að geta hjálpað börnum sínum í gegnum þessa erfiðu skafla, endurtekið oft í langan tíma, þurfi foreldrar styrka hönd, stuðning og leiðsögn. Það eru þúsundir barna og sömuleiðis þúsundir fullorðinna sem hafa þegið þjónustu, viðtöl, námskeið og annað sem tengist starfsemi Foreldrahúss. Ég veit að þetta eru 30 millj. kr. sem ríkið hefur verið að fjármagna og auðvitað kostar allt en mér finnst þetta vera svo lítið fjármagn miðað við þau áhrif sem þessi starfsemi hefur haft. Ef markmið ríkisstjórnarinnar er að ná meiri árangri, sem við öll styðjum, þá finnst mér að við eigum ekki að vera að kippa fótum undan þeim verkefnum sem ganga vel og við getum stutt við svo að við getum hlaupið hraðar, þannig að ég skora á hæstv. ráðherra að skoða þetta mál sérstaklega.



[14:51]
Ragna Sigurðardóttir (Sf):

Virðulegur forseti. Fyrir rúmu ári síðan, stuttu fyrir síðustu alþingiskosningar, heimsótti ég ásamt núverandi hæstv. forsætisráðherra Kristrúnu Frostadóttur, sem þá leiddi lista Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmi norður, réttargeðdeildina á Kleppi. Það var sérstök upplifun að ganga þar um eina hæð deildarinnar sem var frosin á framkvæmdastigi, hæð þar sem framkvæmdir voru hafnar og við gengum um malbikuð gólf innan um nýmalbikaða veggi og súlur, en allt var stopp. Enginn maður var við vinnu. Framkvæmdir höfðu verið stöðvaðar vegna þess að fjármögnun hafði ekki fengist í verkefnið frá þáverandi ríkisstjórn þrátt fyrir gefin loforð, þrátt fyrir að verkið væri hafið. Það var ekki klárað. Í sömu heimsókn fórum við um þann hluta réttargeðdeildarinnar sem var í notkun. Okkur var sýnd aðstaða þar sem starfsfólk vinnur eftir bestu getu við krefjandi aðstæður, stundum jafnvel hættulegar, í ófullkomnum og ég leyfi mér að segja fullkomlega óviðunandi húsakosti. Deildin sjálf er úrelt, löngu komin til ára sinna. Þess vegna gleður það mig og ég fagna því að þessi ríkisstjórn, ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur, hefur tryggt fjármögnun í verkefnið. Framkvæmdir eru hafnar á ný og ný réttargeðdeild opnar á næstu vikum. Átta ný öryggisvistunarrými eru í uppbyggingu á Kleppi með fjárfestingum sem hljóða upp á 600 millj. kr. Samhliða því að rýmin verða tekin í notkun losna jafnframt rými á öðrum deildum og þar með mun skapast aukið svigrúm til að bæta þjónustu og meðferð. Þetta er dæmi um forgangsröðun fjármuna þar sem þeir nýtast hvað best.

Framlög til heilbrigðismála nema tæplega þriðjungi af heildarútgjöldum ríkissjóðs og aukast um 57 milljarða kr. á tímabili fjármálaáætlunar. Stór hluti þessarar aukningar fer í brýn verkefni á sviði geðheilbrigðismála. Innviðaskuldin er, eins og dæmin sýna, gríðarleg. Verkefnið er risavaxið og það verður ekki lagað yfir nótt. Það krefst þess af okkur að við forgangsröðum fjármunum í að vinna upp innviðaskuldina (Forseti hringir.) og byggja upp heildstætt kerfi sem við getum verið stolt af. Við eigum að vera stolt af þeirri geðheilbrigðisþjónustu sem við veitum hér á landi.



[14:54]
Diljá Mist Einarsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka málshefjanda fyrir þarfa umræðu og hæstv. ráðherra fyrir framsöguna. Ég sat nýlega fund í grunnskóla í Reykjavík með góðum vinahjónum mínum, Siggu og Gunna. Við vorum þar 13 fullorðnir að ræða erfiða stöðu sex ára sonar þeirra; hann glímir við langvinn veikindi vegna erfðabreytu, þjáist af kvíða og er á einhverfurófi. Foreldrarnir eyða öllum tíma utan vinnu í að berjast við kerfið sem vinnur á móti þeim. Heimilið er undirlagt og 11 ára bróðir hans finnur vel fyrir álaginu. Sigga hefur þurft að minnka við sig í vinnu því drengurinn hennar á hvergi heima í samfélaginu. Því var lýst að drengurinn eyddi heilu og hálfu dögunum í hnipri fyrir framan kennslustofu eða vafrandi um ganga skólans. Kennarar og starfsfólk skólans gera allt sem þau geta til að mæta honum en hann einfaldlega passar ekki inn í þetta box. Því spyr ég kannski: Af hverju fær hann ekki úrræði við hæfi? Jú, það kom nefnilega svo vel fram á fundinum. Foreldrunum hefur ekki verið leiðbeint um hvaða box eigi að haka í, hvaða blað eigi að senda hvert. Ráðleggingin sem þau fá er: Tilkynnið ykkur til barnaverndar. Staða þeirra í dag er enn einn biðlistinn eftir uppáskrift, 36 mánaða bið, er þeim sagt, í það minnsta.

Virðulegi forseti. Hæstv. ráðherra segir: Áherslumál ríkisstjórnarinnar. Ríkisstjórn sem lofaði stuðningi og aðstoð við börn með fjölþættan vanda. Viðreisn setti geðheilbrigðismál efst á blað í sinni kosningabaráttu. Hvað finnst fólki svo um árangurinn? Það er eitthvað annað sem á hug þeirra allan. Kerfisbresturinn er alvarlegur; einhverfir eru afgangsstærð í samfélaginu og hæstv. ráðherra hefur úthýst þeim enn frekar eins og skjólstæðingar Janusar fengu að reyna. Við þurfum minna blaður, færri blaðamannafundi og fögur fyrirheit. Það þarf að finna þessu fólki stað í okkar samfélagi strax.



[14:56]
Sigmar Guðmundsson (V):

Frú forseti. Ég vil þakka fyrir ágæta umræðu um þetta mál og reyndar fagna því í hvert skipti sem þessi málaflokkur, eins víður og flókinn hann er, er tekinn til umfjöllunar hér á þinginu. Ég hef sjálfur talsvert talað um geðheilbrigðismál í samhengi við fíknivanda, bæði þegar kemur að börnum og ungmennum en líka fullorðnu fólki. Ég held að við vitum það öll í þessum sal að þetta er gríðarlega flókinn vandi. Úrræðin sem þurfa að vera til staðar ná yfir fleiri en eitt ráðuneyti og þau teygja sig auðvitað líka inn til sveitarfélaga og til sjálfseignarstofnana og aðila sem eru að gera gott þarna úti á akrinum. Þessi ríkisstjórn hefur bætt verulega í þegar kemur að fíknivandanum og það er gríðarlega mikið fagnaðarefni. Mig langar t.d. að benda á þá staðreynd að það hefur oft verið talsvert flókið fyrir fólk sem er með fjölþættan vanda að fá aðgengi að tilteknum geðúrræðum vegna þess að til staðar er fíknivandi. Svona fer fólk einhvern veginn á milli þannig að þetta kallar líka á ansi mikla samhæfingu, bæði á milli ráðuneyta, milli ráðuneytisstofnana og fólks sem vinnur gott starf úti á akrinum. Við getum nefnt fangelsin sem dæmi. Við vitum það auðvitað að fangar eru oft með fíknivanda og annan geðrænan vanda. Það hefur oft verið mjög flókið fyrir fangelsin að koma föngum sem sárlega þurfa á því að halda að komast í annað úrræði en að vera lokaðir inni í fangaklefa. Það hefur verið mikið samtal um þetta og mikill vilji til að leysa þetta á milli viðeigandi ráðuneyta. Við höfum líka talsvert talað um börn og ungmenni og þá nöturlegu stöðu að fjöldi foreldra og barna þarf að fara erlendis eftir þjónustu sem er ekki til staðar hérna á Íslandi. Þetta er hugmynd sem er verið að efla og er auðvitað partur af almennu geðheilbrigði fyrir þá sem á þurfa að halda.

Mér finnst að við eigum að taka undir fjölbreytnina í þessu öllu. Ef það er þannig að börn og ungmenni þurfa að komast erlendis í skjól af því að einhver tiltekin þjónusta er ekki í boði hér (Forseti hringir.) eða þá hreinlega af því að foreldrarnir og börnin vilja það og telja að það sé barninu fyrir bestu þá finnst mér sjálfsagt að kerfið taki utan um það. En ég kalla eftir öfgalausri umræðu um þessi mál. (Forseti hringir.) Við vitum öll að það eru langir biðlistar. Úrræðin eru flókin og margþætt og ég held að það sé nokkur samhljómur á milli þingmanna um það að við viljum almennt gera betur í þessum málaflokki.



[14:59]
Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Ég get tekið undir lokaorð síðasta ræðumanns um það að fjölbreytni í þróun þjónustu sé jákvæð. Ég held að það sé til velfarnaðar fallið að horfa ekki bara á einhverja heildarlausn fyrir mjög stóran hóp. Eins og ég sagði í fyrri ræðu minni þá eru þeir sem glíma við geðsjúkdóma og einhverfir, af því að þeir hafa verið hér sérstaklega til umfjöllunar, svo ofboðslega fjölbreyttur hópur. Það á auðvitað við um alla þá sem glíma við einhverja sjúkdóma, það hentar ekki ein lausn fyrir alla. Lykilatriði er að fjölbreytni sé í þróun þjónustu.

Ég vil líka nefna það sem ég hef heyrt þá segja sem hafa þurft að nota geðheilbrigðisþjónustu mikið, að henni hætti til að þeirra mati — og ég held að það sé óhætt að taka undir það og þess vegna er nú kannski þessi umræða — að vera of útilokandi. Ef aðrar greiningar eru fyrir hendi, t.d. einhverjir fíknisjúkdómar, ef um er að ræða aldraða einstaklinga eða einhverfa eins og hér hefur verið rætt sérstaklega um þá hættir þessari geðheilbrigðisþjónustu til að verða svolítið útilokandi fyrir þennan hóp.

Að lokum vil ég líka nefna, af því að ég nefndi atvinnuúrræði í fyrri ræðu minni, að sjálfstæð búseta er auðvitað stór þáttur í vellíðan og uppbyggingu fólks með geðsjúkdóma og sérstaklega fullorðinna einhverfra einstaklinga og að því marki sem þeir eru ekki því mun veikari þá er sjálfstæð búseta held ég lykilatriði. Þar mætti líka reyna meira á samstarf hins opinbera og markaðsaflanna eða atvinnurekenda í því að finna lausnir og aðstoða og byggja undir sjálfstæða búsetu þessara hópa.



[15:02]
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir (Flf):

Forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir að vekja athygli á þessum mikilvægu málum og hæstv. heilbrigðisráðherra fyrir hennar skýru svör. Málshefjandi, hv. þm. Ingibjörg Isaksen, sat í meiri hluta á síðasta kjörtímabili og hennar flokkur um langt árabil. Það er því ekki ósanngjarnt að fullyrða að fyrri ríkisstjórn skilaði málaflokknum ekki frá sér í ásættanlegu ástandi eftir sjö ára samfellda stjórnarsetu. Skortur á samfelldri þjónustu, hvort sem um er að ræða bráðaþjónustu eða langtímaúrræði, er dýrkeyptur fyrir samfélagið. Hv. málshefjandi bendir á kerfisbrest í geðheilbrigðisþjónustu við einhverfa einstaklinga og sú gagnrýni á rétt á sér. Staða fullorðinna einhverfra er ekki ásættanleg og verulegur skortur er á sérhæfðum úrræðum. Ríkisstjórnin hefur nú þegar ákveðið að grípa til aðgerða og eins og fram hefur komið er unnið að því að endurskoða aðgengisskilyrði svo þessi hópur falli ekki milli kerfa. Heilbrigðisráðherra hefur lagt áherslu á að styrkja þjónustu á öllum stigum og hefur m.a. sett fram hugmyndir um stofnun einhverfuseturs í samstarfi við önnur ráðuneyti. Slík uppbygging tekur hins vegar tíma. Þegar kemur að þessum viðkvæma málaflokki skipta forvarnir og snemmtæk íhlutun lykilmáli; því fyrr sem gripið er inn í með viðeigandi stuðningi og fræðslu, þeim mun meiri líkur eru á betri líðan og virkni til lengri tíma. Málshefjanda hefur verið tíðrætt um úrræði sem í boði voru hjá Janusi sem nú hefur hætt starfsemi. Fulltrúar í velferðarnefnd heimsóttu nýlega VIRK sem tóku hluta skjólstæðinga Janusar og þar kom fram að almennt hafi vel tekist til. Það er þó ljóst að breytingar sem þessar geta verið krefjandi fyrir einstaklinga og mikilvægt að fylgja þeim vel eftir.

Að lokum vil ég aftur þakka málshefjanda fyrir mikilvæga umræðu og heilbrigðisráðherra fyrir skýr og upplýsandi svör.



[15:04]
Ingibjörg Isaksen (F):

Frú forseti. Ég vil þakka þeim sem tóku þátt í umræðunni í dag kærlega fyrir. Mér finnst hins vegar kominn tími til að núverandi ríkisstjórnarflokkar fari að axla ábyrgð á stöðunni og fari að stýra landinu og taka ákvarðanir hér þegar varðar viss málefni í stað þess að vísa alltaf í fortíðina. Þingmanninum til upplýsingar, sem hér er að yfirgefa salinn, er ýmislegt sem síðasta ríkisstjórn gerði þegar kom að geðheilbrigðismálum, m.a. aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum sem var vísað áðan. Við gerðum þríhliða samning við Janus geðendurhæfingu og auk þess voru gerðir samningar við hina ýmsu sérfræðilækna og aðila í heilbrigðisstéttunum en þeir höfðu verið samningslausir í á fimmta ár.

Mig langar hins vegar aðeins að fara yfir það nýja úrræði sem hæstv. ráðherra sagði að hefði tekið við og væri sambærilegt Janus endurhæfingu. Það er hins vegar þannig að þetta nýja úrræði, og nú veit ég að þar eru allir af vilja gerðir til að mæta þessum hópi, hefur ekki tekist að mæta þörfum stórs hóps. Það berast upplýsingar núna um að nokkrum aðilum hafi m.a. verið vísað úr þessu úrræði og m.a. misst endurhæfingarstyrkinn sinn vegna þess að þjónustuþarfir þeirra eru taldar of þungar. Það er þannig, og við skulum bara tala hreint út, að það var verið að loka úrræði sem raunverulega virkaði fyrir þennan hóp; úrræði sem búið var að byggja upp í 25 ár með tilheyrandi þekkingu og reynslu byggða á vísindum og rannsóknum til þess að stofna annað og það var ekki tilbúið þegar hinu úrræðinu var sagt upp. Það er bara staðreynd og ég veit að það er verið að byggja það upp og það er jákvætt en tölum samt um hlutina eins og þeir eru. Á meðan var þessi viðkvæmi hópur skilinn eftir í tómarúmi og algeru öryggisleysi.

Mér finnst það ábyrgðarleysi. Ég velti því fyrir mér og vil spyrja hæstv. ráðherra hvaðan hún hafi þær upplýsingar um að allir hafi fengið þjónustu við hæfi því það eru svo sannarlega ekki þær upplýsingar sem ég hef. En ég fagna því að hér eigi að fara í vissar aðgerðir til þess að bæta stöðuna og ég vil spyrja hæstv. ráðherra hvort það séu tilætlaðir fjármunir í þau verkefni (Forseti hringir.) og hvort þær séu markmið um hvernig við ætlum að ná árangri í þessum málaflokki. (Forseti hringir.) Ég fagna því að það eigi að vera vegvísun um kerfið og sannarlega veitir ekki af því og eins fagna ég líka hlutverki einhverfuseturs. (Forseti hringir.) Ég hefði gjarnan viljað sjá að stjórnvöld myndu styrkja og styðja við Einhverfusamtökin sem eru m.a. að sinna þessari þjónustu sem einhverfusetrið á að taka við í framhaldinu. En ég þakka fyrir umræðuna.



[15:07]
heilbrigðisráðherra (Alma D. Möller) (Sf):

Frú forseti. Það er rétt að það var gerður þríhliða samningur við Janus í tíð síðustu ríkisstjórnar og honum var líka rift. Það er algjörlega óumdeilt að þann 8. nóvember var skrifað undir samningslok. Þar segir orðrétt, með leyfi forseta:

„Samningurinn er tilraunaverkefni og ljóst að forsendur þríhliða samnings eru ekki lengur til staðar. Samningsaðilar sammælast með viðauka þessum um að tryggja farsæl samningslok.“

Það er alveg ljóst að hér fór ekkert á milli mála því að því til staðfestingar þá veitti þáverandi ráðherra aukið fjármagn til að ljúka mætti samningi farsællega. Ég get sýnt þennan samning þeim sem vilja.

Það var rætt um bið eftir greiningu. Það er rétt að nú bíða 785 eftir greiningu vegna gruns um einhverfu hjá Geðheilsumiðstöð barna og þarna er um að ræða mikinn uppsafnaðan vanda sem unnið er að að leysa. Frá því að ég tók við höfum við styrkt Geðheilsumiðstöð barna um 95 milljónir og 35 tímabundið. Alls jók þessi ríkisstjórn fjárhæð til geðheilbrigðismála um 2 milljarða á þessu ári. Það er líka unnið að styrkingu Ráðgjafar- og greiningarstöðvar sem er undir forræði félagsmálaráðherra og ég minni á að einhverfa er fötlun en ekki sjúkdómsgreining. Ég minni líka á að vímuefnavandi barna sem hér var ræddur er samkvæmt barnaverndarlögum á forræði barnamálaráðherra. En að öllu þessu er unnið.

Hér var minnst á sjálfsvíg og þá vil ég minna alla þá sem hafa sjálfsvígshugsanir á að leita aðstoðar hjá Píeta eða í hjálparsíma Rauða krossins 1717.

Ég vil að lokum þakka þingmönnum og málshefjanda fyrir góða umræðu og hvet til yfirvegaðrar og málefnalegrar umræðu um geðheilbrigðismál (Forseti hringir.) sem og heilbrigðismál almennt.